Bergrisinn bs.

Sveitarfélögin Hveragerðisbær, Sveitarfélagið Ölfus, Grímsnes- og Grafningshreppur, Sveitarfélagið Árborg, Flóahreppur, Bláskógabyggð, Hrunamannahreppur, Skeiða- og Gnúpverjahreppur, Ásahreppur, Rangárþing ytra, Rangárþing eystra, Skaftárhreppur og Mýrdalshreppur reka byggðasamlag um málefni fatlaðs fólks.

Aðildarsveitarfélögin fela byggðasamlaginu skipulag og framkvæmd þjónustu við fatlað fólk, sem á lögheimili í aðildarsveitarfélögunum, í samræmi við lög nr. 59/19992 um málefni fatlaðs fólks, með síðari breytingum.

Hlutverk byggðasamlagsins er að útfæra þjónustu við fólk með fötlun, fjárhagslegri og faglegri umgjörð hennar er nánar lýst í samþykktum Bergrisans bs.

Sveitarfélagið Ölfus á 5 fulltrúa á aðalfundi Bergrisans.  Sveitarfélagið á ekki fulltrúa í stjórn.

Samþykktir Bergrisans bs.

Reglur Bergrisans bs á þjónustusvæði Suðurlands.  Notendastýrð persónuleg aðstoð fyrir fatlað fólk.

Verklagsreglur Þjónusturáðs Suðurlands vegna þjónustu stuðningsfjölskyldna.

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?