Anna Kristín Sigurðardóttir sýnir í Galleríinu undir stiganum

Ný sýning opnar í Galleríinu undir stiganum fimmtudaginn 4. apríl kl. 17:00.

Anna Kristín Sigurðardóttir fæddist í Vestmannaeyjum 1965 og ólst þar upp fram að gosi. Þá bjó hún einnig þar í rúm 20 ár, eða frá 1997 til 2021 og sækir hún mikinn innblástur þaðan. Heimaklettur er uppáhalds myndefnið hennar sem og og náttúran og fegurðin þar.

Anna notast aðallega við akrýl-málningu og blandaða tækni. Hún útskrifaðist af Listasviði FB og hefur sótt ýmis myndlistar námskeið, m.a. hjá Steinunni Einarsdóttur. Anna hefur tekið þátt í nokkrum samsýningum en þetta er fyrsta einkasýning hennar hér í Þorlákshöfn.

Svo skemmtilega vill til að Anna Kristín er systir Árnýjar sem sýndi hér í galleríinu í febrúar.

Sýningin stendur yfir fram til mánaðarmóta.

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?