Síðustu tvær vikur höfum við farið í gönguferð í móann við Bergin. Börnin hafa notið þess að reyna á sig í ójöfnum í þúfum og möl og takmarkið er að komast að stórum moldarhaug þar sem gaman er að klifra og hoppa. Við hauginn er myndarlegur bobbingur og hafa börnin eytt góðum tíma í að rannsaka hann vel og vandlega og gefur hann börnunum margskonar hugmyndir að sjálfssprottnum leik. Það var gaman að kíka í gegnum gatið og sjá hvað leynist í honum og svo fengu þau þá hugmynd að safna prikum og hræra í bobbingnum.
Með því að fara í móann, þá þurfum við aldrei að fara yfir götu og erum allan tímann í öruggri fjarlægð frá umferðinni. Þá gefum við börnunum frelsi til að ganga á eigin forsendum og leyfum þeim svolítið að stýra ferðinni og sjá hvert forvitnin og áhuginn dregur okkur. Sum börn vilja hlaupa, önnur fara hægar yfir og þá dreifir starfsfólkið sér á hópinn þannig að allir fá eitthvað úr ferðinni.