Veðrið lék við okkur í dag þegar börnin voru mestmegnis úti að hjóla á bílastæðinu við leikskólann. Lögreglan kom í heimsókn og fór yfir hjól og hjálma hjá börnunum og gáfu þeim svo límmiða á hjólið. Börnin fengu svo grillaðar pylsur í hádeginu og tóku börnin vel til matar síns, enda vel svöng eftir mikla hreyfingu.
Í dag var einnig afhending á 3. grænfánanum. Fulltrúi frá Landvernd kom til okkar og afhendi okkur formlega fánann. Við sungum eitt lag í lautinni og svo gengu öll börnin í röð undir fánann.
Það eru fleiri myndir komnar inn á karellen frá deginum.