Framundan er aðventan, tími sem flest börn bíða eftir með eftirvæntingu. Þessi tími er erfiður fyrir marga, spenna og atgangur getur orðið mikill og oft eiga börn erfitt með slíkt. Minnum okkur á að það sem börnin okkar vilja helst er athygli og samvera með sínum nánustu. Við í skólanum munum leggja okkur fram um að eiga góðar stundir með börnunum nú sem endranær.
Sunnlensk ungmenni áttu sviðið í Skjálftanum sem fór fram í íþróttahúsinu í Þorlákshöfn laugardagskvöldið 11. nóvember. Skjálftinn er byggður á Skrekk, hæfileikakeppni ungmenna í grunnskólum Reykjavíkurborgar, og fór hann nú fram í þriðja sinn, en í fyrsta sinn með áhorfendum þar sem fyrstu tvær keppnirnar voru undir áhrifum heimsfaraldurs.
Skáld í skólum verða hjá okkur fimmtudaginn 9.nóvember og mánudaginn 13. nóvember.
Skáld í skólum er á sínu 18. starfsári. Dagskrárnar hafa fyrir löngu sannað sig sem ómissandi þáttur í kynningu nútímabókmennta í grunnskólum landsins, en tæplega 80 mismunandi dagskár hafa orðið til innan vébanda verkefnisins frá því það hóf fyrst göngu sína.
Við erum spennt að fá þessa frábæru gesti í heimsókn til okkar í Grunnskólann.