Danssýning

Árleg danssýning skólans fór fram þriðjudaginn 28. maí. Danskennarinn Anna Berglind Júlídóttir hefur þjálfað nemendur í 1. - 7. bekk fyrir viðburðinn sem að venju var vel heppnaður. Í ár var fjölbreytt úrval dansa og sýndu nemendur glæsileg tilþrif á dansgólfinu. Áhorfendur sem fjölmenntu að venju skemmtu sér konunglega. Þessi árlegi viðburður er svo sannarlega orðinn ómissandi í lok skólaársins.