Hugsað um ungbarn

Síðustu tvær helgar hafa nemendur á elsta stigi tekið þátt í verkefninu hugsað um ungbarn en um er að ræða valgrein sem reglulega stendur nemendum til boða. Verkefnið er fólgið í því að annast dúkku sem hermir eftir þörfum ungbarns heila helgi.

Nemendur fengu fræðslu um umönnun dúkkunnar og fengu með henni pela, bleyju og burðarpoka. Dúkkan hefur þarfir sem nemendur þurfa að finna út hver er þegar hún grætur. Nemendur prufa sig áfram rétt eins og þegar um ungbarn er að ræða.

Heyra mátti ungbarnagrát á göngum skólans þegar nemendur fengu dúkkurnar á föstudegi en þetta valfag vekur alltaf mikla athygli. Gaman var að sjá hversu alvarlega nemendur tóku þessu nýja hlutverki sínu.