333.fundur bæjarstjórnar Sveitarfélagsins Ölfuss

Bæjarstjórn Ölfuss - 333

 

FUNDARBOÐ

333. fundur bæjarstjórnar

verður haldinn í Ráðhúsi Ölfuss, fimmtudaginn 27. júní 2024 og hefst kl. 16:30.

 

Dagskrá :

Almenn mál

1.

1806017 - Kosning í nefndir og ráð Sveitarfélagsins Ölfuss.

 

Kosningar í embætti innan bæjarstjórnar til eins árs.

1. Kosning forseta til eins árs.
2. Kosning 1. varaforseta til eins árs.

 

   

2.

1806017 - Kosning í nefndir og ráð Sveitarfélagsins Ölfuss.

 

Kosning þriggja fulltrúa í bæjarráð til eins árs sbr. 27. gr. samþykktar um stjórn og fundarsköp Sveitarfélagsins Ölfuss nr. 434/2024. Kjósa skal formann og varaformann.

 

   

3.

2105036 - Fundartími bæjarstjórnar

 

Lagt er til að næsti reglulegi fundur bæjarstjórnar verði 29.ágúst nk.og að bæjarráði Sveitarfélagsins Ölfuss verði falin fullnaðarafgreiðsla mála og sömu heimildir og bæjarstjórn hefur á meðan á sumarleyfi bæjarstjórnar stendur.

 

   

4.

2406072 - Fyrirspurn B- og H-lista um atvinnuuppbyggingu og starfsemi fyrirtækja í Ölfusi

 

Fulltrúar H og B lista leggja fram eftirfarandi fyrirspurn:

Mikil atvinnuuppbygging er í farvatninu í Sveitarfélaginu Ölfusi, svo mikil að erfitt er að átta sig á heildarumfangi. Fulltrúar B- og H-lista óska eftir því að fá yfirlit yfir öll þau fyrirtæki sem eru að byggja upp starfsemi sína í sveitarfélaginu eða hafa hug á því að gera það ásamt upplýsingum um fjölda starfa sem fyrirtækin áætla að starfsemi þeirra kalli á.
Einnig köllum við eftir upplýsingum um áætlað vatnsmagn sem hvert og eitt fyrirtæki áætlar að nota sem og raforkuþörf.

 

   

5.

2406005 - Lántaka Brunavarnir Árnessýslu

 

Erindi Brunavarna Árnessýslu, dags. 30.05.2024, vegna lántöku vegna kaupa á nýjum dælubíl, byggingar á tækja- og búnaðargeymslu á Laugarvatni og fyrsta áfanga byggingar á Flúðum.

 

   

6.

2301012 - Undanþága frá skilyrðum um lágmarksíbúafjölda v barnaverndarþjónustu

 

Fyrri umræða um samning Hveragerðisbæjar og Sveitarfélagsins Ölfuss vegna undanþágu frá skilyrðum um lágmarksíbúafjölda vegna barnaverndarþjónustu.

Samningurinn fór til yfirferðar í mennta- og barnamálaráðuneytinu og var samþykktur í fjölskyldu- og fræðslunefnd 20.06.2024.

 

   

7.

2402082 - Stóragerði ASK

 

Lögð er fram aðalskipulagsbreyting fyrir Stóragerði ÍB18. Bætt er við einni íbúðarlóð og núverandi vatnsbóli bætt við aðalskipulag.

Afgreiðsla nefndar: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að auglýsa breytinguna og ganga frá málinu í samræmi við 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

 

   

8.

2406026 - Bakkamelur íbúasvæði ASK

 

Lögð er fram skipulagslýsing vegna aðalskipulagsbreytingar fyrir landið Bakkamel, reit ÍB30 í aðalskipulagi. Skipulagssvæðið verður stækkað úr 28 í 48 Ha og hámarks íbúðamagn aukið úr 25 í 95.

Afgreiðsla nefndar: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að auglýsa skipulagslýsinguna í samræmi við 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bent er á að nauðsynlegt verður að áfangaskipta skipulaginu þegar deiliskipulag verður lagt fram þar sem hámark 25 íbúðir verða í hverjum áfanga. Þá er minnt á að byggðir af þessari stærð þurfa að uppfylla tæknilýsingu Ölfuss sem finna má á vefsíðu sveitarfélagsins.

 

   

9.

2401044 - Grímslækjarheiði ASK

 

Lögð er fram aðalskipulagsbreyting vegna íbúðabyggðar Ytri-Grímslækjar ÍB17 þar sem fyrirhugað er að fjölga íbúðum úr 19 í 25 að ósk landeigenda. Innan skipulagssvæðisins eru lóðir á svonefndri Grímslækjarheiði; Sögusteinn 1 (L231059), Sögusteinn (L172269), Ytri-Grímslækur lóð (L195678) og Hraunkvíar (L172270), Ytri-Grímslækur lóð (L175678) og Efri-Grímslækur land (L203017).

Afgreiðsla nefndar: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að auglýsa breytinguna og ganga frá málinu í samræmi við 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Nefndin bendir á að með skipulaginu stækkar vatnsverndarsvæði inn á aðliggjandi lóð. Skipulagsfulltrúa er falið að upplýsa viðkomandi landeiganda sérstaklega um skipulagið.

 

   

10.

2402055 - Breyting á Aðalskipulagi - landfylling á hafnarsvæði

 

Endurkoma eftir athugasemdaferli
Skipulagið var auglýst og fór í athugasemdaferli í skipulagsgátt en því ferli er nú lokið. Samtals bárust 134 umsagnir meðan á umsagnartíma stóð sem myndi teljast mikið, allavega það mesta sem sést hefur vegna skipulaga í Ölfusi frá því skipulagsgátt var tekin í notkun.
Í flestum þeim umsögnum sem bárust er því mótmælt að landfylling verði sett á þennan stað. Rökstuðningur í umsögnum er að mestu samhljóða en almennt er því mótmælt að landfylling fái fram að ganga af þeim sökum að slík framkvæmd myndi hafa verulega neikvæð áhrif á brimbrettaöldu eða jafnvel eyðileggja hana alveg.
Ljóst er að stór hluti fólks hefur áhyggjur af því að landfyllingin myndi valda óafturkræfum skaða á útivistarsvæði sem nýtt er til brimbrettaiðkunar. Við ákvörðun í slíku máli þarf sveitarfélagið að meta heildarhagsmuni sveitarfélagsins sjálfs, íbúa sveitarfélagsins og svo annarra aðila sem skipulagið snertir.
Þá ber að hafa í huga að umbætur á hafnarsvæðinu er gríðarlega mikilvægt verkefni fyrir atvinnuuppbyggingu í sveitarfélaginu. Höfnin er mikilvæg undirstaða atvinnulífs Þorlákshafnar og grunnurinn að þróun byggðar á svæðinu. Fyrirhuguð landfylling er veigamikill þáttur í því að efla hafnarsvæðið og þá atvinnustarfsemi sem þar er starfrækt.
Í málinu virðist sem svo að hagsmunir hafnarinnar annars vegar og brimbrettaiðkenda hins vegar stangist á.
Í umsögn Brimbrettafélags Íslands er vísað til minnisblaðs sem unnið var fyrir félagið af dönsku verkfræðistofunni DHI. Í minnisblaðinu er tekið sérstaklega fram að mat á brimbrettaöldu taki almennt um 3-8 vikur og feli í sér ítarlega gagnasöfnun. Höfundur minnisblaðsins hafi takmörkuð gögn og aðeins haft 3 daga til að vinna minnisblaðið. Taka verði tillit til þess við túlkun niðurstaðna.
Í minnisblaðinu kemur fram að höfundur þess telur hættu á að landfyllingin hafi áhrif á brimbrettaöldu og mælist til þess að ráðist verði í frekari greiningar.
Í málinu liggur einnig fyrir minnisblað Portum verkfræðistofu áhrif landfyllingarinnar á brimbrettaöldu sem sveitarfélagið lét gera á síðasta ári. Í ljósi þeirra mörgu umsagna sem borist hafa fékk sveitarfélagið verkfræðistofuna til að rýna málið betur og eftir atvikum uppfæra minnisblaðið með tilliti til framkominna athugasemda, meðal annars með því að leggja fram nánari lýsingu á aðferðafræði og bæta við myndskýringar.
Niðurstaða Portum verkfræðistofu er sú áhrif landfyllingar yrðu óveruleg á öldufar. Lagt er þó til að landhluti garðs verði gerður meira hornrétt á strönd til að minnka líkur á að endurkast fari beint á móti öldu.
Niðurstöður minnisblaðanna frá Portum annars vegar og DHI hinsvegar eru ekki samhljóma og komast höfundar að öndverðri niðurstöðu. Í minnisblaði DHI er niðurstaðan sú að hætta sé á að landfyllingin hafi verulega neikvæð áhrif á brimbrettaöldu meðan niðurstaða minnisblaðs Portum er að áhrif á brimbrettaöldu verði óveruleg. Minnisblað Portum var unnið upp úr öldufarsgreiningum sem unnar voru af Vegagerðinni árið 2021 og sýnir minnisblaðið úr öldufarslíkani hvar aldan byggist upp. Í minnisblaði DHI er ekki stuðst við greiningar á öldufari. Að auki eru landfyllingin sem sýnd er á uppdrætti í minnisblaði DHI ekki í samræmi við raunverulegar áætlanir.
Eftir skoðun minnisblaðanna tveggja er það mat sveitarfélagsins að minnisblað Portum byggi á greinarbetri gögnum en minnisblað dönsku verkfræðistofunnar DHI. Þá ber að horfa til þess fyrirvara sem kemur fram í upphafi danska minnisblaðsins þar sem höfundur þess tilgreinir að niðurstaða þess sé einungis eins konar forkönnun en ekki endanleg niðurstaða.
Þegar myndir eru skoðaðar úr minnisblaði Portum verkfræðistofu má greina betur það svæði sem aldan fer um og hvernig landfyllingin myndi líta út í samanburði við ölduganginn. Á loftmyndum má einnig sjá hvernig landfyllingin mun vera staðsett á grynningum sem þegar innihalda mikið af stórgrýti.
Að báðum minnisblöðum virtum og með tilliti til loftmynda og öldufarsteikninga úr minnisblaði Portum verkfræðistofu er það mat sveitarfélagins að líkur á að landfylling af þessari stærð hafi áhrif á brimbrettaöldu séu hverfandi. Minnisblað verkfræðistofunnar DHI virðist hafa verið unnið upp úr mjög takmörkuðum gögnum sem erfitt er að draga veigamiklar ályktanir út frá. Ef farið yrði að tillögu Portum varðandi það að lega varnargarðs yrði formuð meira hornrétt á strönd svo endurkasti sé beint upp í fjöru fremur en aftur út í átt að upptökum öldu, myndu líkindi á að aldan raskist minnka enn frekar.
Brimbrettaiðkendur hafa lagst hart gegn fyrirhugaðri landfyllingu og bera því við að hún muni hafa veruleg áhrif á brimbrettaölduna og jafnvel eyðileggja með öllu möguleika til að stunda brimbrettaiðkun á þessu svæði. Í ljósi þess sem fram hefur komið hefur sveitarfélagið leitast eftir að greina hver raunveruleg áhætta sé á að umrædd brimbrettaalda spillist við landfyllinguna. Á móti kemur mjög brýn þörf hafnarinnar og samfélagsins fyrir aukið athafnasvæði.
Sveitarfélagið tekur undir það með brimbrettaáhugafólki að það væri mjög miður ef ekki yrði mögulegt að stunda brimbrettaiðkun á svæðinu, sér í lagi í ljósi þess mikla áhuga sem brimbrettaáhugafólk hefur sýnt á svæðinu og þeirra mörgu athugasemda sem bárust um skipulagið. En eftir yfirferð gagna er það mat sveitarfélagsins að hætta á því að brimbrettaaldan spillist sé ekki eins veruleg og brimbrettaiðkendur óttast. Þá ber að líta til þeirra verulegu hagsmuna sem fólgnir eru í eflingu hafnarinnar og þeirrar brýnu þarfar sem er um aukið athafnasvæði við bryggju fyrir höfnina.
Við ákvarðanatöku í skipulagsmálum vegast oft á mismunandi hagsmunir. Með hliðsjón af heildarmati á öllum áhrifaþáttum er það niðurstaða Sveitarfélagsins Ölfuss að umrædd breyting á aðalskipulagi skuli samþykkt. Að þessu sögðu er þó lagt til að farið verði að þeim tillögum sem komu fram í minnisblaði Portum um að formun landfyllingarinnar verði með þeim hætti að hættu á endurkasti öldu verði haldið í lágmarki.

Afgreiðsla nefndar: Málið var tekið til atkvæðagreiðslu á fundinum. Fulltrúar D lista greiddu atkvæði með tillögunni. Hrönn Guðmundsdóttir B-lista greiddi atkvæði á móti og Vilhjálmur Baldur Guðmundsson B-lista sat hjá.

Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að ganga frá málinu í samræmi við 3. málsgrein 30. greinar og 2. málsgrein 32. greinar skipulagslaga nr. 123/2010.

 

   

11.

2305039 - DSK Hótel og tengd starfsemi í Hafnarvík v Leirur í Þorlákshöfn - Golfvöllur

 

Lögð er fram tillaga að deiliskipulagi fyrir hótel með heilsulind og veitingahús. Svæðið sem um ræðir er óbyggt svæði innan þéttbýlismarka Þorlákshafnar, u.þ.b. 2,5 km austan við miðbæinn. Fyrirhuguð stærð hótels er allt að 120 herbergi með áætluðum fjölda gistirúma allt að 250. Starfsmannafjöldi verður allt að 20.

Afgreiðsla nefndar: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að auglýsa tillöguna í samræmi við 1. málsgrein 41. greinar skipulagslaga nr. 123/2010.

 

   

12.

2403002 - Hellisheiðarvirkjun br. DSK nr. 20

 

Endurkoma eftir athugasemdaferli.

Engar athugasemdir bárust frá umsagnaraðilum á athugasemdatíma. Ábending kom frá UST um að fjalla þurfi um áhrif á vatnshlot. OR leggur einnig fram lítillega breytingu á texta skipulagsins á þann veg að niðurgrafin skiljuvatnslögn geti verið hvoru megin sem er meðfram gamla þjóðveginum, ekki bara sunnan megin við. Eftirfarandi skýring barst frá OR:
Breyting á deiliskipulagi felst annars vegar í því að afmörkun hluta af borteig X við skiljustöð 2 er breytt til að koma fyrir nýrri vinnsluholu sem rúmast ekki innan núverandi afmörkunar vegna landslags og lagna. Stærð borteigs er óbreytt og eftir sem áður er heimild fyrir einni nýrri vinnsluholu. Þar sem aðeins er verið að hliðra afmörkun svæðisins er ekki talið að áhrif verði á vatnshlot svæðisins.
Hins vegar felst breyting á deiliskipulagi í lítilli dælustöð sem er innan skilgreind iðnaðarsvæðis í aðalskipulagi og við núverandi lagnasvæði. Einnig er gert ráð fyrir færslu á niðurgrafinni skiljuvatnslögn en eftir sem áður verður lögnin meðfram núverandi vegum. Framkvæmdir við litla dælustöð og færsla á legu lagnar sem þegar er skilgreind í deiliskipulagi eru umfangslitlar og ekki taldar hafa áhrif á vantshlot svæðisins.

Varðandi að orðalagi sé breytt þannig að niðurgrafin skiljuvatnslögn geti verið hvoru megin sem er meðfram gamla þjóðveginum en ekki bara sunnan vegarins á uppdrættinum er að þegar tillaga að deiliskipulagsbreytingu var lögð fram var ekki byrjað að hanna lögnina. Nú er hönnunarferlið hafið og við þá vinnu hefur komið í ljós að mögulega hentar betur að hafa lögnina norðan gamla þjóðvegarins að hluta eða öllu leyti.

Afgreiðsla nefndar: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að ganga frá málinu í samræmi við 1. málsgrein 42. grein skipulagslaga nr. 123/2010.

 

   

13.

2405173 - Umsókn um deiliskipulag -eða breytingu - Hveradalir skíðaskáli

 

Lögð er fram breyting á deiliskipulagi fyrir lóð skíðaskálans í Hveradölum. Meginbreyting tillögunar felst í því að stærð og lögun byggingareita 04, 05 og 06 hefur verið breytt á teikningu og reit 07 hefur verið bætt við. Ný hótelbygging kemur á reit 06 og þjónustubyggingar færast yfir á reit 04. Bílastæði eru flutt frá miðsvæði að Suðurlandsvegi til að minnka áhrif þeirra á svæðið og nýta betur miðsvæðið.

Afgreiðsla nefndar: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að auglýsa tillöguna í samræmi við 1. málsgrein 41. greinar skipulagslaga nr. 123/2010.

 

   

Fundargerðir til staðfestingar

14.

2406000F - Bæjarráð Ölfuss - 422

 

Fundargerð 422.fundar bæjarráðs Ölfuss frá 06.06.2024 til staðfestingar.

 

   

15.

2405008F - Skipulags- og umhverfisnefnd - 74

 

Fundargerð 74.fundar skipulags- og umhverfisnefndar frá 05.06.2024 til staðfestingar.

 

   

16.

2406003F - Skipulags- og umhverfisnefnd - 75

 

Fundargerð 75.fundar skipulags- og umhverfisnefndar frá 19.06.2024 til staðfestingar.

 

   

17.

2406002F - Fjölskyldu- og fræðslunefnd - 22

 

Fundargerð 22.fundar fjölskyldu- og fræðslunefndar frá 20.06.2024 til staðfestingar.

 

   

18.

2406004F - Framkvæmda- og hafnarnefnd - 54

 

Fundargerð 54.fundar framkvæmda- og hafnarnefndar frá 19.06.2024 til staðfestingar.

 

   

Fundargerðir til kynningar

19.

1603010 - Málefni fatlaðs fólks Fundargerðir stjórnar Bergrisans.

 

Fundargerð 73.fundar stjórnar Bergrisans frá 31.05.2024 til kynningar.

 

   

20.

1602012 - Samstarf sveitarfélaga Fundargerðir stjórnar SASS.

 

Fundargerð 610.fundar stjórnar SASS frá 06.06.2024 til kynningar.

 

   

21.

2009052 - Fundargerðir Heilbrigðisnefndar Suðurlands

 

Fundargerð 236.fundar Heilbrigðisnefndar Suðurlands frá 11.06.2024 til kynningar.

 

   

22.

1603005 - Samstarf sveitarfélaga Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga

 

Fundargerð 947.fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 19.04.2024 og 948.fundar frá 31.05.2024 til kynningar.

 

   

 

25.06.2024

Elliði Vignisson, bæjarstjóri.

 

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?