Íþróttamannvirki og útivist

Sundlaug Þorlákshafnar

Íþróttaaðstaða í Þorlákshöfn

Í íþróttamiðstöðinni er sundlaug, íþróttasalur og fimleikasalur þar sem allar helstu íþróttaæfingar fara fram, bæði hjá íþróttafélögum, grunnskóla og leikskóla.
Sjá lista yfir íþrótta- og tómstundafélög í Ölfusi.

Við íþróttamiðstöðina er einnig að finna frjálsíþróttavöll, knattspyrnuvelli, 9 holu frisbígolfvöll og tvo strandblakvelli. Á sandinum fyrir ofan Þorlákshöfn er frábært hjólasvæði. Þar rekur Vélhjóladeild ungmennafélagsins Þórs í Þorlákshöfn bæði Endurobraut og motocrossbraut. Þorláksvöllur er 18 holu golfstrandvöllur í 30 mínútna akstursfjarlægð frá Reykjavík. Fyrsta alvöru fjallahjólaæfingarsvæði landsins er staðsett í Gryfjunni við Nesbraut. Fjölbreyttar gönguleiðir eru í Ölfusi og er 3,8 km heilsustígur í Þorlákshöfn og er upphaf stígsins við íþróttamiðstöðina.
Sjá nánari upplýsingar á síðunni afþreying og útivist.

 

Sundlaug Þorlákshafnar

Hafnarbergi 41
815 Þorlákshöfn
Sími: 480 3890
netfang: sundlaug@olfus.is 

Í Þorlákshöfn er 25 metra sundlaug, tveir pottar, vaðlaug, tvær vatnsrennibrautir og innsundlaug með fjölda vatnsleiktækja. Innilaugin er einkar barnvæn, aðeins 45 cm djúp og mjög vinsæl hjá yngstu kynslóðinni. Við laugina er vatnsgufa, tveir rúmgóðir búningsklefar og tveir útiklefar. Sér búningsaðstaða er fyrir þá sem þess óska. Sundlaug Þorlákshafnar er á facebook.

Opnunartími:
Sumartími (1. júní  – 31. ágúst)
Virka daga:  kl. 07:00 til kl. 21:00
Um helgar: kl. 10:00 til kl. 18:00

Vetrartími (1. sept. – 31. maí)
Virka daga: kl. 07:00 – 21:00
Um helgar: kl. 10:00 – 17:00

Gjaldskrá sundlaugar.

Hægt er að kaupa sundkort hér

 

Ræktin, líkamsrækt

Líkamsræktin er staðsett á annari hæð íþróttamiðstöðvarinnar. Í líkamsræktinni eru ýmis upphitunartæki, lyftingartæki, rekkar, bekkir og laus lóð. Einnig er minni salur í líkamsræktinni sem notaður er í hóptímum og tilvalinn í teygjuæfingar og endurhæfingu. Á efri hæðinni eru 2 búningsklefar ásamt 2 pottum og köldu kari sem eru í boði fyrir ræktargesti þeim að kostnaðarlausu.

Fjölbreytt úrval hóptíma sem og einkaþjálfun er í boði.

Opnunartími Ræktarinnar:
Sumartími (1. júní – 31. ágúst)
Virka daga: kl. 06:00 til kl. 21:00
Um helgar: kl. 10:00 til kl. 18:00

Vetrartími (1. sept. – 31. maí)
Virka daga: kl. 06:00 – 21:00
Um helgar: kl. 10:00 – 17:00
 
 
Upplýsingar um þjálfara og heilsueflandi þjónustu:
  • Slitgigtarskólinn: Þri og fim | kl.10-11 | Íþróttahús | thorfridur8787@gmail.com

  • Einkaþjálfun /spinning /þrektímar: Í Ræktinni í íþróttamiðstöð Þorlákshafna| Nánari upplýsingar s. 4803890

  • Vatnsleifimi: Sundlaugin í Þorlákshöfn | umsjón: Ester Hjartardóttir s. 6974400

  • Hatha jóga: Jógahornið| umsjón: Sóley Einarsdóttir s. 8623422

  • Golfnámskeið á sumrin: | umsjón: Ingvar Jónsson PGA golfkennari s. 8999820

  • Anna Berglind Júlísdóttir. Danskennari, Zumba kennari. Netfang: annaberglind@olfus.is, s: 862-3351.

  • Þorsteinn Már Ragnarsson, Med í íþrótta- og heilsufræðum. Hópþjálfun. Netfang: thorsteinn93@gmail.com s:6592048

  • Sævar Elí Kjartansson, ÍAK styrktarþjálfari. Hóp og einkaþjálfun. Netfang: elisaevar@gmail.com , s: 8479074

  • Ástrós H. H. Hólm  |  næringar og einkaþjálfari  | Nánari upplýsingar Hólm næring
  • Ingibjörg Sæmundsdóttir, Íþrótta- og heilsufræðingur. Þjálfun eldri aldurshópa. Einstaklings- og hópaþjálfari. Netfang: ingibjorg1987@gmail.com

  • Sibba Arndal, ÍAK einkaþjálfari, hópþjálfun, hóptímakennari. Netfang: sibbaarndal@gmail.com

  • Sóley Einarsdóttir, jógakennari og spinningkennari. Netfang: soley@audbjorg.is, s: 862-3422.

  • Einkaþjálfun /spinning /þrektímar: Í Ræktinni í íþróttamiðstöð Þorlákshafna| Nánari upplýsingar s. 4803890

Sjá einnig upplýsingar um íþrótta og tómstundafélög í Ölfusi 

 

 

Íþróttamiðstöð Þorlákshafnar

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?