337. fundur bæjarstjórnar Sveitarfélagsins Ölfuss

Bæjarstjórn Ölfuss - 337

 

FUNDARBOÐ

337. fundur bæjarstjórnar

verður haldinn í Ráðhúsi Ölfuss, miðvikudaginn 30. október 2024 og hefst kl. 16:30.

Dagskrá :

Almenn mál

1.

2202001 - Atvinnustefna Ölfuss

 

Kolbrún Hrafnkelsdóttir frá Ölfus Cluster kemur inn á fundinn og fer yfir stöðu mála varðandi atvinnustefnu Sveitarfélagsins Ölfuss.

 

   

2.

2409001 - Fjárhags- og framkvæmdaáætlun Sveitarfélagsins Ölfuss 2025-2028.

 

Forsendur fjárhagsáætlunar ársins 2025 til staðfestingar.
Bæjarráð fjallaði um forsendurnar á 430.fundi sínum þann 17.10.2024.

 

   

3.

2410034 - Ósk um lausn frá störfum varabæjarfulltrúa

 

Fyrir fundinum lá bréf frá Böðvari Guðbirni Jónssyni varabæjarfulltrúa H-lista þar sem hann biðst lausnar frá störfum sínum sem varabæjarfulltrúi.

 

   

4.

1806017 - Kosning í nefndir og ráð Sveitarfélagsins Ölfuss.

 

Kosning varamanns í kjörstjórn í stað Sigurðar Steinars Ásgeirssonar.

 

   

5.

1806017 - Kosning í nefndir og ráð Sveitarfélagsins Ölfuss.

 

Kosning aðalmanns á aðalfund Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga í stað Böðvars Guðbjörns Jónssonar.

 

   

6.

2006063 - Fræðslumál: Hjallastefnan-Bergheimar

 

Fyrir fundinum liggur endurskoðaður samningur við Hjallastefnuna um rekstur leikskólans Bergheima til staðfestingar. Einnig er til staðfestingar rektrarleyfi fyrir leikskólann Bergheima.

Málið var tekið fyrir á 25.fundi fjölskyldu- og fræðslunefndar og eftirfarandi bókað:
Samningurinn og rekstrarleyfið borin undir atkvæði og samþykkt af þremur fulltrúum D lista. Fulltrúar B og H lista sitja hjá í atkvæðagreiðslunni. Samningnum og rekstrarleyfinu er vísað til endanlegrar afgreiðslu í bæjarráði/bæjarstjórn.

 

   

7.

2410039 - Laxabraut 12 - Samkomulag um úthlutun lóðar

 

First Water leggja fram beiðni um úthlutun lóðar norðan við Laxabraut á móti fiskeldisstöð þeirra. Fyrirtækið hyggst nýta lóðina undir starfsmannabústaði á framkvæmdatíma sem er áætlaður til ársins 2030. Að framkvæmdum loknum mun fyrirtækið fjarlægja allar byggingar af lóðinni og skila henni auðri aftur til sveitarfélagins. Einnig er lögð fram beiðni um að hefja vinnu við gerð deiliskipulags á lóðinni.

Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin fellst á úthlutun lóðarinnar fyrir sitt leyti og heimild til að hefja vinnu við gerð deiliskipulags er veitt. Endanlegri afgreiðslu málsins er vísað til bæjarstjórnar.

 

   

8.

2406024 - Selvogsbraut 12 - stækkun verslunar DSK

 

Endurkoma eftir athugasemdir Skipulagsstofnunar.
Skipulagsstofnun gerði athugasemdir við að gera þyrfti grein fyrir heimiluðu byggingarmagni innan byggingareita, gera þyrfti grein fyrir umhverfisáhrifum og að lagatilvísun væri röng. Einnig var gerð athugasemd við framsetningu skipulagsgagna og vísað til þess að sýna ætti hvernig skipulagið fæli í sér breytingu á miðbæjarskipulagi. Síðasta athugasemdin virðist byggja á misskilningi þar sem þessar lóðir hafa aldrei verið deiliskipulagðar.

Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Samþykkt einróma. Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að ganga frá málinu í samræmi við 1. málsgrein 42. grein skipulagslaga nr. 123/2010.

 

   

9.

2403002 - Hellisheiðarvirkjun br. DSK nr. 20

 

Endurkoma eftir athugasemdir Skipulagsstofnunnar.
Skipulagshöfundur hefur leiðrétt skipulagið til móts við athugasemdir Skipulagsstofnunnar. Í stað þess að skipulagið sé sett fram sem greinargerð með uppdráttum er nú lagður fram breytingaruppdráttur sem inniheldur greinargerð.

Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Samþykkt einróma. Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að ganga frá málinu í samræmi við 1. málsgrein 42. greinar skipulagslaga nr. 123/2010.

 

   

10.

2310028 - DSK deiliskipulag Hlíðarendi L171724

 

Endurkoma eftir athugasemdir Skipulagsstofnunnar.
Gerðar voru leiðréttingar á skipulaginu í kjölfar athugasemda SLS. Sett skýrari ákvæði um fráveitu frá sumarhúsum. Byggingarreitur starfsmannahúss færður inn á iðnaðarsvæði og bætt við texta um vatnshlot.

Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Samþykkt einróma. Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að ganga frá málinu í samræmi við 1. málsgrein 42. greinar skipulagslaga nr. 123/2010.

 

   

11.

2410052 - Vesturbyggð 3. og 4. áfangi - ný 2ja hæða raðhús - óv.br. DSK

 

Lögð er fram óveruleg breyting á deiliskipulagi Vesturbyggðar 3. og 4. áfanga. Breytingin felur í sér að fjölbýlishúsum syðst í hverfinu er breytt í 2ja hæða raðhús.

Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulags- og byggingarfulltrúum verði heimilað að samþykkja breytinguna og ganga frá málinu í samræmi við 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

 

   

12.

2410038 - Vegtengingar á Þorlákshafnarvegi

 

Vegagerðin gerir kröfu um lágmarksfjarlægð milli vegtenginga til að tryggja umferðaröryggi á veginum enda er þarna stofnvegur með 90 km hámarkshraða.

Þorlákshafnarvegur er þjóðvegur en uppfyllir þó ekki skilyrði Vegagerðarinnar sem gerðar eru um fjarlægðir milli vegtenginga en samkvæmt reglum Vegagerðarinnar skulu vera 400m á milli tenginga. Vegtengingar á veginum eru of margar og of stutt á milli þeirra og því liggur fyrir að það þarf að fækka þeim.

Þetta hefur verið að koma upp í deiliskipulögum sem hafa farið í ferli þarna á svæðinu og það er farið að há okkur að ekki sé búið að fastsetja hvernig vegtengingar skuli vera skipulagðar.

Vegagerðin lagði til að Ölfus myndi deiliskipuleggja allan veginn í heild sinni þannig að það væri komin heildstæð ákvörðun um vegtengingar á veginum. Áætlað er að leggja fyrir næsta fund skipulagslýsingu fyrir vegtengingar á veginum sem byggir á þeim drögum sem komu frá Vegagerðinni. Þegar lýsingin hefur tekið sinn hring mætti svo leggja fram fullmótaða deiliskipulagstillögu en þá höfðum við hugsað okkur að skipuleggja einnig göngu/hjólastíg sem myndi liggja meðfram Þorlákshafnarvegi.

Lagt er til að tillögur Vegagerðarinnar verði auglýstar sem skipulagslýsing og kynnt fyrir landeigendum á svæðinu.

Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að auglýsa tillöguna í samræmi við 1. málsgrein 40. greinar skipulagslaga nr. 123/2010.

 

   

13.

2410035 - Akurgerði - nýtt deiliskipulag

 

Lagt er fram nýtt deiliskipulag á jörðinni Akurgerði. Jörðinni er skipt upp í fimm lóðir, fjórar þeirra eru hugsaðar undir íbúðarhús en sú fimmta fyrir smáhýsi til útleigu. Deiliskipulagið er í samræmi við aðalskipulagbreytingu sem er í lokayfirferð hjá Skipulagsstofnun.

Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin bendir á að afla þarf samþykkis stjórnar Nýbýlaveitu um afhendingu neysluvatns. Þegar slíkt samþykki liggur fyrir má auglýsa skipulagið.
Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að auglýsa tillöguna í samræmi við 1. málsgrein 41. greinar skipulagslaga nr. 123/2010.

 

   

14.

2405173 - Skíðaskálinn í Hveradölum - breytt DSK

 

Endurkoma eftir athugasemdaferli.
Gerðar voru athugasemdir við deiliskipulagið á umsagnartíma sem skipulagshöfundur hefur nú brugðist við. Hreinsistöð frárennslis verður stækkuð þannig að hún anni 1150 persónueiningum í stað 800 og uppdráttur hefur verið uppfærður þannig að veghelgunarsvæði sé þar merkt inn.

Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að ganga frá málinu í samræmi við 1. málsgrein 42. greinar skipulagslaga nr. 123/2010.

 

   

15.

2402083 - Reykjabraut 2 - DSK

 

Endurkoma eftir athugasemdaferli.
Gerð hefur verið breyting á deiliskipulagi Reykjabrautar 2 til að koma til móts við athugasemdir íbúa á svæðinu. Til að fyrirbyggja aukna umferð í gegnum Reykjabraut verður götunni lokað í syðri enda þannig að aðkoma verður aðeins að Selvogsbraut. Þá hefur neðsta húsinu verið snúið og því komið fyrir þannig að það færist 2,4 m fjær Reykjabraut 4. Þá hefur framkvæmdaraðili einnig fallist á að reisa skjólgirðingu á lóðamörkum við Reykjabraut 4 áður en framkvæmdir hefjast. Rætt hefur verið við íbúa í Reykjabraut 4 og eru þau sátt við framkvæmdina eftir þær breytingar sem gerðar voru. Þá hefur 2 bílastæðum verið bætt við í syðri hluta götunnar.

Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin telur að bæta þurfi við einu stæði til viðbótar við syðsta húsið. Skipulagið er samþykkt en með þeim fyrirvara að einu stæði sé bætt við fyrir framan það hús.
Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að ganga frá málinu í samræmi við 1. málsgrein 42. greinar skipulagslaga nr. 123/2010.

-Í kjölfar afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar lagði skipulagshöfundur fram nýja teikningu þar sem einu bílastæði hefur verið bætt við fyrir framan syðsta húsið.

 

   

16.

2407019 - Gerðarkot og Þorgrímsstaðir nýtt DSK

 

Endurkoma eftir athugasemdaferli.
Vegagerðin samþykkti ekki vegtengingu sem getið var á skipulagi. Skipulag hefur verið uppfært þannig að tengivegir liggi að núverandi samþykktri vegtengingu.

Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að ganga frá málinu í samræmi við 1. málsgrein 42. greinar skipulagslaga nr. 123/2010.

 

   

17.

2407026 - Grásteinn breytt DSK

 

Endurkoma eftir umsagnarferli.
Skipulagið hefur lokið umsagnarferli og hefur skipulagshöfundur gert lítils háttar lagfæringar til að bregðast við athugasemdum.

Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að ganga frá málinu í samræmi við 1. málsgrein 42. greinar skipulagslaga nr. 123/2010.

 

   

18.

2306014 - DSK Akurholt ný íbúðar-, frístunda-, iðnaðar-, verslunar og þjónustusvæði

 

Endurkoma eftir athugasemdaferli.
Breytingar eru gerðar til að koma til móts við framkomnar athugasemdir og ábendingar umsagnaraðila og eru þær helstar:
-Heilbrigðiseftirlit Suðurlands: Í stað hreinsivirkis á hverri lóð er gert ráð fyrir sameiginlegu hreinsivirki fyrir hvern áfanga íbúða- verslunar- og þjónustulóða. Einnig fyrir iðnaðarlóðir. Eftir sem áður er gert ráð fyrir hreinsivirkjum á hverri lóð frístundahúsasvæðis með heimild til samnýtingu fleiri lóða. Þá eru heimildir til uppbyggingar og reksturs á iðnaðarsvæði takmarkaðar við heimildir sem að jafnaði eiga við um athafnalóðir. Þannig er umfangsmikill og/eða mengandi iðnaður útilokaður á svæðinu.
-Vegagerðin: Skipulagsmörk færð inn fyrir veghelgunarsvæði, að undanskildum tengingum við þjóðveg.
-Endurkoma eftir athugasemdaferli
Breytingar eru gerðar til að koma til móts við framkomnar athugasemdir og ábendingar umsagnaraðila og eru þær helstar:
-Heilbrigðiseftirlit Suðurlands: Í stað hreinsivirkis á hverri lóð er gert ráð fyrir sameiginlegu hreinsivirki fyrir hvern áfanga íbúða- verslunar- og þjónustulóða. Einnig fyrir iðnaðarlóðir. Eftir sem áður er gert ráð fyrir hreinsivirkjum á hverri lóð frístundahúsasvæðis með heimild til samnýtingu fleiri lóða. Þá eru heimildir til uppbyggingar og reksturs á iðnaðarsvæði takmarkaðar við heimildir sem að jafnaði eiga við um athafnalóðir. Þannig er umfangsmikill og/eða mengandi iðnaður útilokaður á svæðinu.
-Vegagerðin: Skipulagsmörk færð inn fyrir veghelgunarsvæði, að undanskildum tengingum við þjóðveg.

Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að ganga frá málinu í samræmi við 1. málsgrein 42. greinar skipulagslaga nr. 123/2010.

 

   

19.

2410048 - Laxabraut 31 DSK

 

Lagt er fram nýtt deiliskipulag fyrir lóðina Laxabraut 31. Lóðirnar eru hugsaðar fyrir hreinlegan iðnað sem veldur ekki hættu á grunnvatnsmengun. Þá er staðsetningin talin henta vel fyrir t.d. súrefnisframleiðslu þar sem laxeldisfyrirtækin sem eru umhverfis þurfa mikið magn súrefnis. Þegar hafa borist beiðnir um lóðir innan skipulagsins fyrir súrefnisverksmiðju. Ferli súrefnisframleiðslu felur í sér að notast þarf við háa turna þegar súrefni er aðskilið frá öðrum gastegundum. Í ljósi þess er heimilt í skipulaginu að reisa mannvirki sem geta verið allt að 55m á hæð.

Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að ganga frá málinu í samræmi við 1. málsgrein 42. greinar skipulagslaga nr. 123/2010.

 

   

20.

2406050 - Laxabraut 15-29 Landeldisstöð First Water DSK

 

Endurkoma eftir umsagnarferli.
Heilbrigðiseftirlit og Umhverfisstofnun gerðu athugasemdir við skipulagið sem bregðast þurfti við. Skipulagið er nú lagt fram að nýju eftir breytingar ásamt viðbrögðum við athugasemdum.

Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að ganga frá málinu í samræmi við 1. málsgrein 42. greinar skipulagslaga nr. 123/2010.

 

   

Fundargerðir til staðfestingar

21.

2410001F - Bæjarráð Ölfuss - 429

 

Fundargerð 429.fundar bæjarráðs Ölfuss frá 03.10.2024 til staðfestingar.

 

   

22.

2410004F - Skipulags- og umhverfisnefnd - 80

 

Fundargerð 80.fundar skipulags- og umhverfisnefndar frá 09.10.2024 til staðfestingar.

 

   

23.

2410002F - Fjölskyldu- og fræðslunefnd - 25

 

Fundargerð 25.fundar fjölskyldu- og fræðslunefndar frá 09.10.2024 til staðfestingar.

 

   

24.

2410008F - Íþrótta- og tómstundanefnd - 46

 

Fundargerð 46.fundar íþrótta- og tómstundanefndar frá 16.10.2024 til staðfestingar.

 

   

25.

2410006F - Bæjarráð Ölfuss - 430

 

Fundargerð 430.fundar bæjarráðs Ölfuss frá 17.10.2024 til staðfestingar.

 

   

26.

2410010F - Skipulags- og umhverfisnefnd - 81

 

Fundargerð 81.fundar skipulags- og umhverfisnefndar frá 23.10.2024 til staðfestingar.

 

   

27.

2410011F - Fjölskyldu- og fræðslunefnd - 26

 

Fundargerð 26.fundar fjölskyldu- og fræðslunefndar frá 24.10.2024 til staðfestingar.

 

   

28.

2410009F - Öldungaráð - 6

 

Fundargerð 6.fundar öldungaráðs frá 16.10.2024 til kynningar.

 

   

29.

2410003F - Afgreiðslunefnd byggingarfulltrúa - 69

 

Fundargerð 69.fundar afgreiðslunefndar byggingarfulltrúa frá 25.10.2024 til kynningar.

 

   

Fundargerðir til kynningar

30.

2009027 - Fundargerðir stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga.

 

Fundargerð 76.fundar stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga frá 24.09.2024 til kynningar.

 

   

31.

1603005 - Samstarf sveitarfélaga Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga

 

Fundargerð 952.fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 27.09.2024 til kynningar.

 

   

32.

1602012 - Samstarf sveitarfélaga Fundargerðir stjórnar SASS.

 

Fundargerð 614.fundar stjórnar SASS frá 04.10.2024 til kynningar.

 

   

33.

1701026 - Brunamál Fundargerðir stjórnar Brunavarna Árnessýslu

 

Fundargerð 22.fundar stjórnar Brunavarna Árnessýslu frá 27.09.2024 og 23.fundar frá 09.10.2024 til kynningar.

 

   

34.

1603010 - Málefni fatlaðs fólks Fundargerðir stjórnar Bergrisans.

 

Fundargerð 77.fundar stjórnar Bergrisans frá 20.09.2024 til kynningar.

 

   

35.

2009052 - Fundargerðir Heilbrigðisnefndar Suðurlands

 

Fundargerð 239.fundar Heilbrigðisnefndar Suðurlands frá 08.10.2024 til kynningar.

 

   

36.

1601020 - Hreinlætismál Fundargerðir stjórnar Sorpstöðvar Suðurlands.

 

Fundargerð 328.fundar stjórnar Sorpstöðvar Suðurlands frá 16.10.2024 til kynningar.

 

   

37.

2302026 - Arnardrangur hses.fundargerðir stjórnar

 

Fundargerð 18.fundar stjórnar Arnardrangs frá 21.10.2024 til kynningar.

 

   

 

28.10.2024

Elliði Vignisson, bæjarstjóri.

 

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?