Draugagarðurinn opnar

Setningarathöfn Skammdegishátíðarinnar Þollóween verður haldin í Draugagarðinum (Skrúðgarðinum) kl. 17:30 mánudaginn 28. október. Danssýning og kór Grunnskólans, markaður nornanna þar sem ýmis spennandi varningur verður í boði eins og Þollóweenbuff, fjölnota taupoka og skilti til að merkja hús fyrir Grikk eða gott. Sýningin Í húsi nornanna verður opin í galleríi undir stiganum á opnunartíma bókasafnsins. Öll velkomin!

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?