Fundargerðir

Til bakaPrenta
Bæjarstjórn Ölfuss - 337

Haldinn í Ráðhúsi Ölfuss,
30.10.2024 og hófst hann kl. 16:30
Fundinn sátu: Gestur Þór Kristjánsson forseti bæjarstjórnar,
Grétar Ingi Erlendsson bæjarfulltrúi,
Erla Sif Markúsdóttir bæjarfulltrúi,
Guðlaug Einarsdóttir 1. varamaður,
Hrönn Guðmundsdóttir bæjarfulltrúi,
Vilhjálmur Baldur Guðmundsson bæjarfulltrúi,
Ása Berglind Hjálmarsdóttir bæjarfulltrúi,
Elliði Vignisson bæjarstjóri,
Sandra Dís Hafþórsdóttir sviðsstjóri,
Fundargerð ritaði: Sandra Dís Hafþórsdóttir, sviðsstjóri
Í upphafi fundar leitaði forseti eftir athugasemdum við fundarboð en engar bárust.


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2202001 - Atvinnustefna Ölfuss
Kolbrún Hrafnkelsdóttir frá Ölfus Cluster kemur inn á fundinn og fer yfir stöðu mála varðandi atvinnustefnu Sveitarfélagsins Ölfuss.
Kolbrún kynnti niðurstöður úr íbúakönnun sem fram fór 13.-25.mars 2024 og svaraði spurningum.

Bæjarstjórn þakkar kynninguna.
2. 2409001 - Fjárhags- og framkvæmdaáætlun Sveitarfélagsins Ölfuss 2025-2028.
Forsendur fjárhagsáætlunar ársins 2025 til staðfestingar.
Bæjarráð fjallaði um forsendurnar á 430.fundi sínum þann 17.10.2024.

Samþykkt samhljóða.
3. 2410034 - Ósk um lausn frá störfum varabæjarfulltrúa
Fyrir fundinum lá bréf frá Böðvari Guðbirni Jónssyni varabæjarfulltrúa H-lista þar sem hann biðst lausnar frá störfum sínum sem varabæjarfulltrúi.
Bæjarstjórn samþykkir beiðni Böðvars og þakkar honum fyrir samstarfið og vel unnin störf í þágu sveitarfélagsins.

Samþykkt samhljóða.
4. 1806017 - Kosning í nefndir og ráð Sveitarfélagsins Ölfuss.
Kosning varamanns í kjörstjórn í stað Sigurðar Steinars Ásgeirssonar.
Lagt er til að Jón Páll Kristófersson verði varamaður í kjörstjórn í stað Sigurðar Steinars Ásgeirssonar.

Samþykkt samhljóða.


5. 1806017 - Kosning í nefndir og ráð Sveitarfélagsins Ölfuss.
Kosning aðalmanns á aðalfund Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga og áheyrnarfulltrúa í skipulags- og umhverfisnefnd í stað Böðvars Guðbjörns Jónssonar.


Lagt er til að Ása Berglind Hjálmarsdóttir H-lista verði aðalmaður á aðalfundi Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga og að Berglind Friðriksdóttir H-lista verði varamaður hennar. Einnig er lagt til að Guðmundur Oddgeirsson verði áheyrnarfulltrúi H-lista í skipulags- og umhverfisnefnd.

Samþykkt samhljóða.

6. 2006063 - Fræðslumál: Hjallastefnan-Bergheimar
Fyrir fundinum liggur endurskoðaður samningur við Hjallastefnuna um rekstur leikskólans Bergheima til staðfestingar. Einnig er til staðfestingar rektrarleyfi fyrir leikskólann Bergheima.

Málið var tekið fyrir á 25.fundi fjölskyldu- og fræðslunefndar og eftirfarandi bókað:
Samningurinn og rekstrarleyfið borin undir atkvæði og samþykkt af þremur fulltrúum D lista. Fulltrúar B og H lista sitja hjá í atkvæðagreiðslunni. Samningnum og rekstrarleyfinu er vísað til endanlegrar afgreiðslu í bæjarráði/bæjarstjórn.

Samþykkt með 6 atkvæðum D- og B-lista. Ása Berglind Hjálmarsdóttir H-lista sat hjá.
7. 2410039 - Laxabraut 12 - Samkomulag um úthlutun lóðar
First Water leggja fram beiðni um úthlutun lóðar norðan við Laxabraut á móti fiskeldisstöð þeirra. Fyrirtækið hyggst nýta lóðina undir starfsmannabústaði á framkvæmdatíma sem er áætlaður til ársins 2030. Að framkvæmdum loknum mun fyrirtækið fjarlægja allar byggingar af lóðinni og skila henni auðri aftur til sveitarfélagins. Einnig er lögð fram beiðni um að hefja vinnu við gerð deiliskipulags á lóðinni.

Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin fellst á úthlutun lóðarinnar fyrir sitt leyti og heimild til að hefja vinnu við gerð deiliskipulags er veitt. Endanlegri afgreiðslu málsins er vísað til bæjarstjórnar.

Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
8. 2406024 - Selvogsbraut 12 - stækkun verslunar DSK
Endurkoma eftir athugasemdir Skipulagsstofnunar.
Skipulagsstofnun gerði athugasemdir við að gera þyrfti grein fyrir heimiluðu byggingarmagni innan byggingareita, gera þyrfti grein fyrir umhverfisáhrifum og að lagatilvísun væri röng. Einnig var gerð athugasemd við framsetningu skipulagsgagna og vísað til þess að sýna ætti hvernig skipulagið fæli í sér breytingu á miðbæjarskipulagi. Síðasta athugasemdin virðist byggja á misskilningi þar sem þessar lóðir hafa aldrei verið deiliskipulagðar.

Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Samþykkt einróma. Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að ganga frá málinu í samræmi við 1. málsgrein 42. grein skipulagslaga nr. 123/2010.

Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
9. 2403002 - Hellisheiðarvirkjun br. DSK nr. 20
Endurkoma eftir athugasemdir Skipulagsstofnunnar.
Skipulagshöfundur hefur leiðrétt skipulagið til móts við athugasemdir Skipulagsstofnunnar. Í stað þess að skipulagið sé sett fram sem greinargerð með uppdráttum er nú lagður fram breytingaruppdráttur sem inniheldur greinargerð.

Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Samþykkt einróma. Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að ganga frá málinu í samræmi við 1. málsgrein 42. greinar skipulagslaga nr. 123/2010.

Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
10. 2310028 - DSK deiliskipulag Hlíðarendi L171724
Endurkoma eftir athugasemdir Skipulagsstofnunnar.
Gerðar voru leiðréttingar á skipulaginu í kjölfar athugasemda SLS. Sett skýrari ákvæði um fráveitu frá sumarhúsum. Byggingarreitur starfsmannahúss færður inn á iðnaðarsvæði og bætt við texta um vatnshlot.

Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Samþykkt einróma. Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að ganga frá málinu í samræmi við 1. málsgrein 42. greinar skipulagslaga nr. 123/2010.

Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
11. 2410052 - Vesturbyggð 3. og 4. áfangi - ný 2ja hæða raðhús - óv.br. DSK
Lögð er fram óveruleg breyting á deiliskipulagi Vesturbyggðar 3. og 4. áfanga. Breytingin felur í sér að fjölbýlishúsum syðst í hverfinu er breytt í 2ja hæða raðhús.

Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulags- og byggingarfulltrúum verði heimilað að samþykkja breytinguna og ganga frá málinu í samræmi við 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
12. 2410038 - Vegtengingar á Þorlákshafnarvegi
Vegagerðin gerir kröfu um lágmarksfjarlægð milli vegtenginga til að tryggja umferðaröryggi á veginum enda er þarna stofnvegur með 90 km hámarkshraða.

Þorlákshafnarvegur er þjóðvegur en uppfyllir þó ekki skilyrði Vegagerðarinnar sem gerðar eru um fjarlægðir milli vegtenginga en samkvæmt reglum Vegagerðarinnar skulu vera 400m á milli tenginga. Vegtengingar á veginum eru of margar og of stutt á milli þeirra og því liggur fyrir að það þarf að fækka þeim.

Þetta hefur verið að koma upp í deiliskipulögum sem hafa farið í ferli þarna á svæðinu og það er farið að há okkur að ekki sé búið að fastsetja hvernig vegtengingar skuli vera skipulagðar.

Vegagerðin lagði til að Ölfus myndi deiliskipuleggja allan veginn í heild sinni þannig að það væri komin heildstæð ákvörðun um vegtengingar á veginum. Áætlað er að leggja fyrir næsta fund skipulagslýsingu fyrir vegtengingar á veginum sem byggir á þeim drögum sem komu frá Vegagerðinni. Þegar lýsingin hefur tekið sinn hring mætti svo leggja fram fullmótaða deiliskipulagstillögu en þá höfðum við hugsað okkur að skipuleggja einnig göngu/hjólastíg sem myndi liggja meðfram Þorlákshafnarvegi.

Lagt er til að tillögur Vegagerðarinnar verði auglýstar sem skipulagslýsing og kynnt fyrir landeigendum á svæðinu.

Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að auglýsa tillöguna í samræmi við 1. málsgrein 40. greinar skipulagslaga nr. 123/2010.

Niðurstaða nefndarinnar staðfest
13. 2410035 - Akurgerði - nýtt deiliskipulag
Lagt er fram nýtt deiliskipulag á jörðinni Akurgerði. Jörðinni er skipt upp í fimm lóðir, fjórar þeirra eru hugsaðar undir íbúðarhús en sú fimmta fyrir smáhýsi til útleigu. Deiliskipulagið er í samræmi við aðalskipulagbreytingu sem er í lokayfirferð hjá Skipulagsstofnun.

Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin bendir á að afla þarf samþykkis stjórnar Nýbýlaveitu um afhendingu neysluvatns. Þegar slíkt samþykki liggur fyrir má auglýsa skipulagið.
Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að auglýsa tillöguna í samræmi við 1. málsgrein 41. greinar skipulagslaga nr. 123/2010.

Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
14. 2405173 - Skíðaskálinn í Hveradölum - breytt DSK
Endurkoma eftir athugasemdaferli.
Gerðar voru athugasemdir við deiliskipulagið á umsagnartíma sem skipulagshöfundur hefur nú brugðist við. Hreinsistöð frárennslis verður stækkuð þannig að hún anni 1150 persónueiningum í stað 800 og uppdráttur hefur verið uppfærður þannig að veghelgunarsvæði sé þar merkt inn.

Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að ganga frá málinu í samræmi við 1. málsgrein 42. greinar skipulagslaga nr. 123/2010.

Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
15. 2402083 - Reykjabraut 2 - DSK
Endurkoma eftir athugasemdaferli.
Gerð hefur verið breyting á deiliskipulagi Reykjabrautar 2 til að koma til móts við athugasemdir íbúa á svæðinu. Til að fyrirbyggja aukna umferð í gegnum Reykjabraut verður götunni lokað í syðri enda þannig að aðkoma verður aðeins að Selvogsbraut. Þá hefur neðsta húsinu verið snúið og því komið fyrir þannig að það færist 2,4 m fjær Reykjabraut 4. Þá hefur framkvæmdaraðili einnig fallist á að reisa skjólgirðingu á lóðamörkum við Reykjabraut 4 áður en framkvæmdir hefjast. Rætt hefur verið við íbúa í Reykjabraut 4 og eru þau sátt við framkvæmdina eftir þær breytingar sem gerðar voru. Þá hefur 2 bílastæðum verið bætt við í syðri hluta götunnar.

Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin telur að bæta þurfi við einu stæði til viðbótar við syðsta húsið. Skipulagið er samþykkt en með þeim fyrirvara að einu stæði sé bætt við fyrir framan það hús.
Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að ganga frá málinu í samræmi við 1. málsgrein 42. greinar skipulagslaga nr. 123/2010.

-Í kjölfar afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar lagði skipulagshöfundur fram nýja teikningu þar sem einu bílastæði hefur verið bætt við fyrir framan syðsta húsið.

Hrönn Guðmundsdóttir og Elliði Vignisson tóku til máls.

Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
16. 2407019 - Gerðarkot og Þorgrímsstaðir nýtt DSK
Endurkoma eftir athugasemdaferli.
Vegagerðin samþykkti ekki vegtengingu sem getið var á skipulagi. Skipulag hefur verið uppfært þannig að tengivegir liggi að núverandi samþykktri vegtengingu.

Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að ganga frá málinu í samræmi við 1. málsgrein 42. greinar skipulagslaga nr. 123/2010.

Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
17. 2407026 - Grásteinn breytt DSK
Endurkoma eftir umsagnarferli.
Skipulagið hefur lokið umsagnarferli og hefur skipulagshöfundur gert lítils háttar lagfæringar til að bregðast við athugasemdum.

Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að ganga frá málinu í samræmi við 1. málsgrein 42. greinar skipulagslaga nr. 123/2010.

Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
18. 2306014 - DSK Akurholt ný íbúðar-, frístunda-, iðnaðar-, verslunar og þjónustusvæði
Endurkoma eftir athugasemdaferli.
Breytingar eru gerðar til að koma til móts við framkomnar athugasemdir og ábendingar umsagnaraðila og eru þær helstar:
-Heilbrigðiseftirlit Suðurlands: Í stað hreinsivirkis á hverri lóð er gert ráð fyrir sameiginlegu hreinsivirki fyrir hvern áfanga íbúða- verslunar- og þjónustulóða. Einnig fyrir iðnaðarlóðir. Eftir sem áður er gert ráð fyrir hreinsivirkjum á hverri lóð frístundahúsasvæðis með heimild til samnýtingu fleiri lóða. Þá eru heimildir til uppbyggingar og reksturs á iðnaðarsvæði takmarkaðar við heimildir sem að jafnaði eiga við um athafnalóðir. Þannig er umfangsmikill og/eða mengandi iðnaður útilokaður á svæðinu.
-Vegagerðin: Skipulagsmörk færð inn fyrir veghelgunarsvæði, að undanskildum tengingum við þjóðveg.
-Endurkoma eftir athugasemdaferli
Breytingar eru gerðar til að koma til móts við framkomnar athugasemdir og ábendingar umsagnaraðila og eru þær helstar:
-Heilbrigðiseftirlit Suðurlands: Í stað hreinsivirkis á hverri lóð er gert ráð fyrir sameiginlegu hreinsivirki fyrir hvern áfanga íbúða- verslunar- og þjónustulóða. Einnig fyrir iðnaðarlóðir. Eftir sem áður er gert ráð fyrir hreinsivirkjum á hverri lóð frístundahúsasvæðis með heimild til samnýtingu fleiri lóða. Þá eru heimildir til uppbyggingar og reksturs á iðnaðarsvæði takmarkaðar við heimildir sem að jafnaði eiga við um athafnalóðir. Þannig er umfangsmikill og/eða mengandi iðnaður útilokaður á svæðinu.
-Vegagerðin: Skipulagsmörk færð inn fyrir veghelgunarsvæði, að undanskildum tengingum við þjóðveg.

Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að ganga frá málinu í samræmi við 1. málsgrein 42. greinar skipulagslaga nr. 123/2010.

Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
19. 2410048 - Laxabraut 31 DSK
Lagt er fram nýtt deiliskipulag fyrir lóðina Laxabraut 31. Lóðirnar eru hugsaðar fyrir hreinlegan iðnað sem veldur ekki hættu á grunnvatnsmengun. Þá er staðsetningin talin henta vel fyrir t.d. súrefnisframleiðslu þar sem laxeldisfyrirtækin sem eru umhverfis þurfa mikið magn súrefnis. Þegar hafa borist beiðnir um lóðir innan skipulagsins fyrir súrefnisverksmiðju. Ferli súrefnisframleiðslu felur í sér að notast þarf við háa turna þegar súrefni er aðskilið frá öðrum gastegundum. Í ljósi þess er heimilt í skipulaginu að reisa mannvirki sem geta verið allt að 55m á hæð.

Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að ganga frá málinu í samræmi við 1. málsgrein 42. greinar skipulagslaga nr. 123/2010.

Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
20. 2406050 - Laxabraut 15-29 Landeldisstöð First Water DSK
Endurkoma eftir umsagnarferli.
Heilbrigðiseftirlit og Umhverfisstofnun gerðu athugasemdir við skipulagið sem bregðast þurfti við. Skipulagið er nú lagt fram að nýju eftir breytingar ásamt viðbrögðum við athugasemdum.

Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að ganga frá málinu í samræmi við 1. málsgrein 42. greinar skipulagslaga nr. 123/2010.

Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
Fundargerðir til staðfestingar
21. 2410001F - Bæjarráð Ölfuss - 429
Fundargerð 429.fundar bæjarráðs Ölfuss frá 03.10.2024 til staðfestingar.

1. 2410002 - Beiðni um viðauka við fjárhagsáætlun vegna vatnsrennibrautar. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
2. 2409001 - Fjárhags- og framkvæmdaáætlun Sveitarfélagsins Ölfuss 2025-2028. Til kynningar.
3. 1704002 - Lagafrumvörp Beiðni Alþingis um umsögn. Til kynningar.

Fundargerðin lögð fyrir í heild sinni og hún staðfest.
22. 2410004F - Skipulags- og umhverfisnefnd - 80
Fundargerð 80.fundar skipulags- og umhverfisnefndar frá 09.10.2024 til staðfestingar.

1. 2410005 - Kynning á fundi - Miðbæjarsvæði. Til kynningar.
2. 2409038 - Gljúfurárholt land 5 og 6 - brASK. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
3. 2403002 - Hellisheiðarvirkjun br. DSK nr. 20. Tekið fyrir sérstaklega.
4. 2410003 - Hnjúkamói 9 - Heimild til að staðsetja svalir fyrir utan byggingareit. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
5. 2402083 - Reykjabraut 2 - DSK. Til staðfestingar.Tekið fyrir sérstaklega.
6. 2406024 - Selvogsbraut 12 - stækkun verslunar DSK. Tekið fyrir sérstaklega.
7. 2310028 - DSK deiliskipulag Hlíðarendi L171724. Tekið fyrir sérstaklega.
8. 2409023 - Merkjalýsingar - Hnjúkamói 1-3 og Rásamói 1-5. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
9. 2409025 - Grænhóll - Athugasemdir vegna bæjamerkinga. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
10. 2409017 - Ósk um lóðir fyrir rofastöðvar. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
11. 2409035 - Umsókn um stöðuleyfi fyrir gám. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
12. 2409039 - Útboð sorphirðu í Ölfusi. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
13. 2409043 - Uppskipting landeignar - Klettar 1. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
14. 2405163 - Selvogsbraut 12, sameining lóðar. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
15. 2410004 - Skráning svefnskála sem Starfsmannabústaðir. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
16. 2409014 - Breyttir fundartímar skipulagsnefndar. Til kynningar.
17. 2410014 - Mön á Víkursandi. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.

Fundargerðin tekin fyrir í heild sinni og hún staðfest.
23. 2410002F - Fjölskyldu- og fræðslunefnd - 25
Fundargerð 25.fundar fjölskyldu- og fræðslunefndar frá 09.10.2024 til staðfestingar.

1. 2311017 - Skýrsla skólastjóra. Til kynningar.
2. 2302055 - Skýrsla leikskólastjóra. Til kynningar.
3. 2210004 - Starfsáætlun leikskólans Bergheima. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
4. 2403047 - Foreldrahandbók frístundaheimilis grunnskólans. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
5. 2006063 - Fræðslumál: Hjallastefnan-Bergheimar. Tekið fyrir sérstaklega.
6. 2311018 - Menning og viðburðir í jólamánuðinum. Til kynningar.
7. 2409020 - Kynning á velferðar- og ráðgjafaþjónustu. Til kynningar.
8. 2410007 - Fjárhagsáætlun 2025 - staða mála. Til kynningar.
9. 2410018 - Mál frá velferðarþjónustu. Trúnaðarmál.

Fundargerðin tekin fyrir í heild sinni og hún staðfest.
24. 2410008F - Íþrótta- og tómstundanefnd - 46
Fundargerð 46.fundar íþrótta- og tómstundanefndar frá 16.10.2024 til staðfestingar.

1. 2410032 - Heimsókn frá BMX brós. Til kynningar.
2. 2410031 - Tillaga að ungmennaráði 2024-2025. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
3. 2410030 - Barna og unglingastarf Golfklúbbs Þorlákshafnar, sumar 2024. Til kynnningar.
4. 2409036 - Frístundastarf fyrir börn og ungmenni sumarið 2025 - tillaga frá B og H lista. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
5. 2404118 - Umsóknir í afreks- og styrktarsjóð. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.

Fundargerðin tekin fyrir í heild sinni og hún staðfest.
25. 2410006F - Bæjarráð Ölfuss - 430
Fundargerð 430.fundar bæjarráðs Ölfuss frá 17.10.2024 til staðfestingar.

1. 2409001 - Fjárhags- og framkvæmdaáætlun Sveitarfélagsins Ölfuss 2025-2028. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
2. 2410029 - Minningardagur um fórnarlömb umferðarslysa 2024. Til kynningar.
3. 2410033 - Beiðni frá Klúbbnum Stróki um styrk vegna starfseminnar árið 2025. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
4. 2403012 - Viðauki við samning vegna átöppunarverksmiðju á Hlíðarenda. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.

Fundargerðin tekin fyrir í heild sinni og hún staðfest.
26. 2410010F - Skipulags- og umhverfisnefnd - 81
Fundargerð 81.fundar skipulags- og umhverfisnefndar frá 23.10.2024 til staðfestingar.

1. 2410041 - M2 Óseyrarbraut - breyting á aðalskipulagi. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
2. 2410048 - Laxabraut 31 DSK. Tekið fyrir sérstaklega.
3. 2306014 - DSK Akurholt ný íbúðar-, frístunda-, iðnaðar-, verslunar og þjónustusvæði. Tekið fyrir sérstaklega.
4. 2406050 - Laxabraut 15-29 Landeldisstöð First Water DSK. Tekið fyrir sérstaklega.
5. 2407026 - Grásteinn breytt DSK. Tekið fyrir sérstaklega.
6. 2407019 - Gerðarkot og Þorgrímsstaðir nýtt DSK. Tekið fyrir sérstaklega.
7. 2405173 - Skíðaskálinn í Hveradölum - breytt DSK. Tekið fyrir sérstaklega.
8. 2402083 - Reykjabraut 2 - DSK. Tekið fyrir sérstaklega.
9. 2410022 - Uppskipting landeignar Laxabraut 12. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
10. 2410035 - Akurgerði - nýtt deiliskipulag. Tekið fyrir sérstaklega.
11. 2410038 - Vegtengingar á Þorlákshafnarvegi. Tekið fyrir sérstaklega.
12. 2410019 - Nafnasamkeppni Vesturbyggð. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
13. 2410039 - Laxabraut 12 - Samkomulag um úthlutun lóðar. Tekið fyrir sérstaklega.
14. 2410046 - Styrkumsókn v/ stígaviðgerða í Reykjadal. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
15. 2410047 - Framtíðarskipulag taldsvæðis og gervigrasvallar. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
16. 2410052 - Vesturbyggð 3. og 4. áfangi - ný 2ja hæða raðhús - óv.br. DSK. Tekið fyrir sérstaklega.
17. 2410044 - Kolefnisbinding með dreifingu líförvandi efna. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.

Fundargerðin tekin fyrir í heild sinni og hún staðfest.
27. 2410011F - Fjölskyldu- og fræðslunefnd - 26
Fundargerð 26.fundar fjölskyldu- og fræðslunefndar frá 24.10.2024 til staðfestingar.

1. 2410049 - Kynning á ráðningarferli leikskólastjóra í nýjan leikskóla í Vesturbyggð. Til kynningar.

Bæjarstjórn fagnar ráðningu Hrafnhildar Hlínar Hjartardóttur og býður hana velkomna til starfa hjá sveitarfélaginu.

Fundargerðin tekin fyrir í heild sinni og hún staðfest.
28. 2410009F - Öldungaráð - 6
Fundargerð 6.fundar öldungaráðs frá 16.10.2024 til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
29. 2410003F - Afgreiðslunefnd byggingarfulltrúa - 69
Fundargerð 69.fundar afgreiðslunefndar byggingarfulltrúa frá 25.10.2024 til kynningar.

Fundargerðin lögð fram til kynningar.
Fundargerðir til kynningar
30. 2009027 - Fundargerðir stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga.
Fundargerð 76.fundar stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga frá 24.09.2024 til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
31. 1603005 - Samstarf sveitarfélaga Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Fundargerð 952.fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 27.09.2024 til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
32. 1602012 - Samstarf sveitarfélaga Fundargerðir stjórnar SASS.
Fundargerð 614.fundar stjórnar SASS frá 04.10.2024 til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
33. 1701026 - Brunamál Fundargerðir stjórnar Brunavarna Árnessýslu
Fundargerð 22.fundar stjórnar Brunavarna Árnessýslu frá 27.09.2024 og 23.fundar frá 09.10.2024 til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
34. 1603010 - Málefni fatlaðs fólks Fundargerðir stjórnar Bergrisans.
Fundargerð 77.fundar stjórnar Bergrisans frá 20.09.2024 til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
35. 2009052 - Fundargerðir Heilbrigðisnefndar Suðurlands
Fundargerð 239.fundar Heilbrigðisnefndar Suðurlands frá 08.10.2024 til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
36. 1601020 - Hreinlætismál Fundargerðir stjórnar Sorpstöðvar Suðurlands.
Fundargerð 328.fundar stjórnar Sorpstöðvar Suðurlands frá 16.10.2024 til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
37. 2302026 - Arnardrangur hses.fundargerðir stjórnar
Fundargerð 18.fundar stjórnar Arnardrangs frá 21.10.2024 til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:05 

Til bakaPrenta
X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?