Fundargerðir

Til bakaPrenta
Framkvæmda- og hafnarnefnd - 64

Haldinn í Þjónustumiðstöð,
19.03.2025 og hófst hann kl. 08:15
Fundinn sátu: Guðbergur Kristjánsson formaður,
Grétar Ingi Erlendsson varaformaður,
Erla Sif Markúsdóttir aðalmaður,
Gunnsteinn R. Ómarsson aðalmaður,
Berglind Friðriksdóttir aðalmaður,
Sigmar Björgvin Árnason sviðsstjóri,
Benjamín Þorvaldsson hafnarstjóri,
Fundargerð ritaði: Sigmar B Árnason, Sviðstjóri og byggingarfulltrúi
Inná fundinn undir mál nr 1 og 2 mætir Sigurður Ás Grétarsson eftirlitsmaður með framkvæmdur hafnarinnar inná fundinn og fer yfir stöðu þeirra.


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2109002 - Stækkun hafnarinnar Áfangi 1. Suðurvarargarður og Suðurvararbryggja
Á fundinn mætti eftirlitsmaður verksins og fór yfir stöðu framkvæmda við stækkun hafnar áfanga 1. Verkfundargerð 71 lögð fram.

Staða framkvæmda.
Unnið hefur verið við dýpkun á úthaldinu, gröftur gengur vel. Verktakinn reiknar með að dýpkun ljúki í vikunni.
Unnið er við nýju landfyllinguna, verkinu miðar ágætlega.

Næstu 2 vikur:
Vinna við nýju landfyllinguna.
Raða sjóvörn þar sem dýpkað var að landi. Brjóta rest af bryggjuvegg og jafna yfirborðið.

Afgreiðsla: Lagt fram, nefndin þakkar upplýsingarnar.
2. 2307020 - Suðurvararbryggja endurbygging stálþils
Á fundinn mætti eftirlitsmaður verksins og fór yfir stöðu framkvæmda. Verkfundagerð 24 lögð fram.

Verkstaða:
Allri vinnu við útboðsverkið „Suðurvararbryggja endurbygging stálþils 2023“ er lokið.

Búið er að setja upp einingarhús og steypa þak og botnplötur. Gluggar og hurðir komnar í vatns og rafbúnaðar rými.
Eftir er að einangra og klæða húsið.
Setja milligólf í öll rými.
Múra í lása.
Setja hurð í spennarými og þétta með öllum hurðum og gluggum.

Afgreiðsla: Lagt fram, nefndin þakkar upplýsingarnar.
3. 2503013 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Suðurvör 3 - Flokkur 2
Sviðstjóri leggur hönnunargögn fyrir nefndina. Framkvæmdir hefjast á næstunni. Farið verður í verðkannanir á öllum verkþáttum.
Afgreiðsla: Nefndin samþykkir að gerðar verði verðkannanir fyrir hvern verkþátt
4. 2502024 - Gatnagerð - yfirborðsfrágangur Nes- og Laxabraut
Sviðstjóri leggur útboðsgögn fyrir nefndina. Stefnt er að að auglýsa útboðið í lok viku.
Afgreiðsla: Nefndin samþykkir að auglýsa verkið til útboðs.
5. 2501021 - Framkvæmdaráætlun 2024-25
Sviðsstjóri fór yfir stöðu helstu verklegar framkvæmdir sem eru á áætlun 2024-25.
Afgreiðsla: Lagt fram, nefndin þakkar upplýsingarnar.

1. Breytingar Hafnarbergi 1. Unnið er við breytingar á innrirýmum.
2. Gatnalýsing Nes-og Laxabrautar.
Verkstaða 11. febrúar.
Unnið er við loka yfirborðsfrágang. Lokaúttekt fer fram 25 feb
3. Framkvæmdir við nýjan leikskóla, verkstaða.
1. Smiðir er búnir að setja alla í alla glugga og hurðir að undanskildi einni hurð.
2. Smiðir eru búnir að setja upp létta timburveggi inn í undirbúningsrými
3. Píparar eru búnir að koma niður einangrunarmottum og hitalögnum undir
gólfhita í allri norður-álmu ásamt því að þrýstiprófa.
4. Blikkarar hafa verið að vinna í loftræstikerfi
5. Búið er að vera að þétta glugga og hurðir að utan
6. Rafvirki hefur verið að vinna í raflögnum
7. Múrarar eru búnir að múra hurðarkanta og ganga frá gluggum að innan

4. Ný rennibraut. Efla vinnur að hönnun undirstaða og lagna ofl. Arkís er að vinna frumdrög af framtíðarplani sundlaugarsvæðis. Gert er ráð fyrir að hefja framkvæmdir á næstu dögum.
5. Gatnagerð Vesturbyggð vestan Eyja- og Básahrauns
Verkstaða:
Búið er að moka upp lausu efni í götustæði 1, að um st. 360 og að mestu úr götu 2. Búið að leggja skólplögn á kaflanum frá Selvogsbraut og milli brunnabila S25 ? S26. Unnið er við gera skurð tilbúinn fyrir skólplögn á milli brunnabila S27 ? S28. Búið að fleyga og moka úr fráveituskurðum í götu Götur A og B sem eru að verða tilbúnar fyrir skólplögn.
Áætlun næstu 2-ja vikna:
Halda áfram að leggja fráveitulagnir í götu 1, á milli brunnabila S26 ? S27 ? S28 og áfram. Fleyga klöpp í fráveituskurði og moka úr skurðum áfram götu 1. Gera skurði í götum A og B tilbúna fyrir skólplögn og leggja. Fleyga klöpp í Götu 2, vegstæði og skurði
6. Gatnagerð Norðurbakka 1-13
Verkstaða:
Búið að leggja allar lagnir; skólplagnir, neysluvatnslagnir, hitaveitulagnir, götulýsingu, rafveitulagnir og fjarskiptalagnir. Búið að setja upp lampa á ljósastaura og tengja. Verið er að grófylla og þjappa götu í hæð. Búið er að mynda skólplögn eins og mögulegt var þar sem lagnir voru fullar á köflum þar sem dæling var ekki í gangi frá dælubrunni. Búið er að hreinsa og klóra vatnslögn og skola.
Áætlun næstu 2-ja vikna:
Klára fyllingar í götur og hefla í hæð og annan frágang.
6. 2502025 - Gatnagerð - yfirborðsfrágangur vesturbyggð 1-2 áfangi
Sviðstjóri leggur útboðsgögn fyrir nefndina. Stefnt er að að auglýsa útboðið í lok viku.
Afgreiðsla: Nefndin samþykkir að auglýsa verkið til útboðs.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:15 

Til bakaPrenta
X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?