Fundargerðir

Til bakaPrenta
Framkvæmda- og hafnarnefnd - 65

Haldinn í Þjónustumiðstöð,
08.04.2025 og hófst hann kl. 08:15
Fundinn sátu: Guðbergur Kristjánsson formaður,
Grétar Ingi Erlendsson varaformaður,
Erla Sif Markúsdóttir aðalmaður,
Hrönn Guðmundsdóttir 1. varamaður,
Berglind Friðriksdóttir aðalmaður,
Sigmar Björgvin Árnason sviðsstjóri,
Benjamín Þorvaldsson hafnarstjóri,
Fundargerð ritaði: Sigmar B Árnason, Sviðstjóri og byggingarfulltrúi
Davíð Halldórsson umhverfisstjóri situr fundin á Teams og fer yfir mál 9, 10 og 11


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2109002 - Stækkun hafnarinnar Áfangi 1. Suðurvarargarður og Suðurvararbryggja
Sviðstjóri fór yfir stöðu framkvæmda við stækkun hafnar áfanga 1. Verkfundargerð 72 lögð fram.

Verkstaða. Dýpkun lokið. Stóra grafan gróf við nýju bryggjuna og náði að fjarlægja rest af kerjum og steina sem
voru ofar en -7,0 m
Unnið er við nýju landfyllinguna, verkinu miðar ágætlega.
Næstu 2 vikur:
Vinna við nýju landfyllinguna.
Raða sjóvörn þar sem dýpkað var að landi. Brjóta rest af bryggjuvegg og jafna yfirborðið.

Afgreiðsla: Lagt fram, nefndin þakkar upplýsingarnar.
2. 2307020 - Suðurvararbryggja endurbygging stálþils
Sviðstjóri fór yfir stöðu framkvæmda.
Verkstaða: Allar jarðvinnu framkvæmdir eru búnar. Unnið er við lokafrágang á spennistöðvarhúsi

Afgreiðsla: Lagt fram, nefndin þakkar upplýsingarnar.
3. 2406028 - Suðurvarabryggja-Yfirborðsfrágangur
Sviðstjóri fór yfir stöðu framkvæmda við yfirborðsfrágang (þekju). Verkfundargerð 2 lögð fram.
Staða framkvæmda:

Afgreiðsla: Lagt fram, nefndin þakkar upplýsingarnar.
4. 2504011 - Nýr viðlegukantur við landenda gömlu Suðurvararbryggju
Fyrir framkvæmda- og hafnarnefnd lá minnisblað um forsendur fyrir nýjum viðlegukanti við landenda gömlu Suðurvararbryggju. Framkemur að fyrirsjáanlegt sé að nýting suðurhluta hafnarinnar mun verða umtalsvert meiri en gert hefur verið ráð fyrir enda gerir áætlun TorCargo ráð fyrir nánast fullri nýtingu hins nýja suðurvararkants. Hin nýja bryggja (Flataskersbryggja) er því ætluð til notkunar fyrir seiðaflutninga-, vikur-, áburðar- og fóðurskip og mun hún leysa úr þeirri þörf sem skapast þegar TorCargo
fjölgar ferðum sínum og þegar fóðurskipum fjölgar, sérstaklega í tengslum við uppbyggingu landeldis.?

Afgreiðsla: Framkvæmda- og hafnarnefnd samþykkir að ráðast í hönnun og gerð útboðsgagna fyrir nýja bryggju við landenda gömlu Suðurvararbryggju. Einnig er ákveðið að sækja um stuðning ríkisins við framkvæmdina. Verkefnið verður unnið í samræmi við fyrirliggjandi tillögu þar sem gert er ráð fyrir að bryggjan verði 50 metra löng, 14 metra breið, og með hönnunardýpi um 10 metra. Áætlaður heildarkostnaður, án virðisaukaskatts, er um 250 milljónir króna. Stefnt er að því að bryggjan verði tilbúin haustið 2026. Samhliða er starfsmönnum falið að vinna viðauka vegna þessarar framkvæmdar og leggja fyrir nefndina.
5. 2504013 - Uppfylling við smábátahöfnina
Hafnarstjóri leggur fram minnisblað og beiðni um viðauka fyrir uppfyllingu við suðurenda smábátabryggju, um er að ræða 600m2.

Áætlaður framkvæmdakostnaður er 7,7 milljónir með yfirborðsfrágangi.

Afgreiðsla: Nefndin samþykkir beiðnina og felur sviðstjóra að óska eftir viðauka til bæjarráðs.
6. 2504007 - Beiðni um viðauka-kaup á liðlétting
Hafnarstjóri leggur fram beiðni um viðauka til kaups á liðlétting, sjá minnisblað.

Viðauki er uppá 3 milljónir.

Afgreiðsla: Nefndin samþykkir að vísa málinu til gerðar fjárhagsáætlunar 2026
7. 2502025 - Gatnagerð - yfirborðsfrágangur vesturbyggð 1-2 áfangi
Sviðstjóri leggur niðurstöður útboðs fyrir nefndina


1 Jón og Margeir ehf. 218.354.200 81,7%
2 Fagurverk ehf. 263.479.300 98,6%
3 Ellert Skúlason ehf. 268.731.580 100,6%
4 Malbiksstöðin ehf. 285.986.884 107,1%

Kostnaðaráætlun TSÁ 267.128.100 100,0%

Afgreiðsla: Nefndin samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda Jón og Margeir ehf að uppfylltum skilyrðum útboðsgagna
8. 2502024 - Gatnagerð - yfirborðsfrágangur Nes- og Laxabraut
Sviðstjóri leggur niðurstöður útboðs fyrir nefndina

1 Jón og Margeir ehf. 393.662.000 63,6%
2 Colas Ísland ehf. 398.702.600 64,4%
3 Malbikunarstöðin Höfði ehf. 410.330.000 66,3%
4 Malbiksstöðin ehf. 457.352.800 73,9%
5 Loftorka Reykjavík ehf. 470.720.300 76,0%
6 Ellert Skúlason ehf. 470.845.000 76,1%

Kostnaðaráætlun ráðgjafa 619.075.000 100,0%

Afgreiðsla: Nefndin samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda Jón og Margeir ehf að uppfylltum skilyrðum útboðsgagna
9. 2504004 - Tímagjald verktaka 2025
Sviðstjóri leggur fyrir nefndina niðurstöður/minnisblað verðkönnunar með þjónustusamninga við verktaka vegna viðhaldsvinnu.
Afgreiðsla: Nefndin samþykkir að gerðir verða þjónustusamninga við lægstbjóðendur, samb. minnisblað.

FA smíði ehf smíðavinnu
JBÓ Pípulagnir ehf pípulagnir
Árvirkinn ehf raflagnir
Kambabrún ehf málun



Guðbergur Kristjánsson vék af fundi við afgreiðslu máls.
10. 2504010 - Þjónustumiðstöð - ýmis mál.
Umhverfistjóri leggur fyrir nefnd minnisblað með tillögum af breytingum á ýmsu tengdu Þjónustumiðstöðvar.
Afgreiðsla: Nefndin þakkar kynninguna, samþykkir tillögur umhverfistjóra og felur honum að vinna þær áfram.
11. 2504003 - Malbiksyfirlagnir 2025
Umhverfistjóri leggur niðurstöður verðkönnunar fyrir yfirlagnir á malbiki fyrir nefndina til samþykktar.

Colas ehf 21.122.950 kr.
Höfði ehf 22.476.400 kr.
Malbiksstöðin 34.918.080 kr.

Kostnaðaráætlun 23.059.000 kr.

Afgreiðsla: Nefndin samþykkir að samið verði við lægstbjóðanda
12. 2504012 - Yfirborðsfrágangur lóð leikskóla
Sviðstjóri leggur hönnun leikskólalóðar fram til kynningar. Gert er ráð fyrir að bjóða framkvæmdir út á næstu vikum.
Afgreiðsla: Nefndin þakkar kynninguna
13. 2501021 - Framkvæmdaráætlun 2024-25
Sviðsstjóri fór yfir stöðu helstu verklegar framkvæmdir sem eru á áætlun 2024-25.
Afgreiðsla: Lagt fram, nefndin þakkar upplýsingarnar.

1. Breytingar Hafnarbergi 1. Smíðavinnu er lokið, spörtlun er að hefjast í vikunni.
2. Gatnalýsing Nes-og Laxabrautar.
Áhleyping tafðist á seinnihlutann, rafvirki klárar að tengja í vikunni.
3. Framkvæmdir við nýjan leikskóla, verkstaða.
1. Búið er að setja niður gólfhita í suðurenda hússins
2. Búið er að setja anhydrit í öll gólf að undanskildu gólfi í útigeymslu
3. Smiðir eru byrjaðir að setja upp hljóðveggi
4. Málari hefur verið að mála í norðurenda
5. Rafvirki hefur verið að sinna sínum verkefnum.
6. Smiðir hafa verið að vinna í klæðningu að utan verðu
4. Ný rennibraut. Búið að girða svæðið af, fjarlægja litlu brautina, jarðvinna langt komin. Gert er ráð fyrir að hefja vinnu við undirstöður í næstu viku.
5. Gatnagerð Vesturbyggð vestan Eyja- og Básahrauns
Verkstaða:26. mars
Búið er að moka upp lausu efni að mestu úr götustæði 1 og 2 og úr Götu C. Í Götu 1 er búið að leggja skólplögn á kaflanum frá Selvogsbraut og milli brunnabila S25 ? S28 og er verið að undirbúa skurðinn fyrir regnvatnslögn. Í Götu B er búið að leggja skólplögn og heimæðar. Unnið er við að fleyga og moka skurð fyrir skólplögn á milli brunnabila S28 ? S31.
Áætlun næstu 2-ja vikna:
Leggja fráveitulagnir í götu 1, á milli brunnabila S28 ? S29 ? S30 ? S31 og inn í hliðargötur. Leggja regnvatnslagnir og vatnslögn í götu 1 og B á þeim köflum sem skólplögn er komin. Fleyga og moka úr fráveituskurði áfram götu 1. Fleyga klöpp í Götu 2, vegstæði og skurði. Sprengja klöpp í regnvatnssvelgjum og á dýpsta kafla skurðar í Götu 2.
6. Gatnagerð Norðurbakka 1-13

Verkstaða:26. Mars

Búið að grófylla og þjappa götu í hæð, eftir að fara yfir með hefil og jafna fyllingu. Búið að snyrta og ganga frá svæði að mestu. Ekki unnið við verkið sem stendur.
Það sem er eftir:
- Hefla götu.
- Loka holum við brunahana og vatnsloka við gatnamót botnlanga.
- Loka holu vegna tenginga hitaveitu og rafmagns við gatnamót.
- Setja upp umferðarmerki.
- Setja efni við brunna og spindla.
- Skila lagnamyndatöku.
- Skila úttektar- og prófunarskýrslu götulýsingar.
- Gera plötupróf.
- Skila mælingum.
Áætlun næstu 2-ja vikna:
Hefla fyllingu og klára frágang.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:15 

Til bakaPrenta
X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?