342.fundur bæjarstjórnar Sveitarfélagsins Ölfuss

Bæjarstjórn Ölfuss - 342

 

FUNDARBOÐ

342. fundur bæjarstjórnar

verður haldinn í Ráðhúsi Ölfuss, fimmtudaginn 27. mars 2025 og hefst kl. 16:30.

 

 

 

Dagskrá :

Almenn mál

1.

2105036 - Fundartími bæjarstjórnar

 

Lagt er til að halda aukafund í bæjarstjórn 10.apríl vegna fyrri umræðu um ársreikning sveitarfélagsins. Næsta reglulega fund bæjarstjórnar ber upp á Sumardaginn fyrsta og því er lagt til að flýta fundartíma aprílmánaðar um einn dag fram til 23.apríl.

 

   

2.

2502042 - Vatnsverksmiðja Hlíðarenda - stækkun byggingarreits - óv. DSKbr.

 

- Endurkoma - uppfærð teikning
Lögð er fram óveruleg breyting á deiliskipulagi Hlíðarenda. Breytingin felst í stækkun byggingarreits svo áætluð mannvirki rúmist þar innan. Þau mannvirki sem lentu utan byggingarreits snúa að upplifunarþætti verksmiðjunnar þar sem finna má gestastofu og stóra manngerða á.
Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Breytingin er samþykkt með fyrirvara um samþykki vegagerðar. Afla þarf slíks samþykkis áður en breytingin er birt í B-deild stjórnartíðinda.
Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulags og byggingarfulltrúum verði heimilað að samþykkja breytinguna og ganga frá málinu í samræmi við 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

 

   

3.

2503027 - Hellisheiðarvirkjun - Ný lóð í nýsköpunarkjarna - 22. breyting deiliskipulags

 

Lögð er fram breyting á skipulagi Hellisheiðarvirkjunnar sem felur í sér að nýrri 1,15 ha. lóð er bætt við innan nýsköpunarkjarna.
Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að auglýsa tillöguna í samræmi við 1. málsgrein 41. greinar skipulagslaga nr. 123/2010.

 

   

4.

2402057 - Br. DSK Gljúfurárholt 23 og 24

 

-Endurkoma eftir athugasemdaferli
Gerðar voru athugasemdir við skipulagið sem skipulagshöfundur hefur nú brugðist við.

Viðbrögð við athugasemdum eru eftirfarandi:

Vegagerðin
Ósamþykkt vegtenging vestan megin við Hvammsveg tekin út af uppdrætti.
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands
Hugtakinu smáhýsi skipt út fyrir gistiskáli
Hámarksstærð hvers gistiskála tilgreind
Hámarksfjöldi gesta í hverjum gistiskála tilgreindur
Greinagerð aðlöguð svo að skýrt komi fram hámarksfjöldi gesta í gistingu
Greinagerð aðlöguð svo hún vísi í núgildandi leiðbeiningar fyrir fráveitur.
Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að ganga frá málinu í samræmi við 1. málsgrein 42. grein skipulagslaga nr. 123/2010.

 

   

5.

2306014 - DSK Akurholt ný íbúðar-, frístunda-, iðnaðar-, verslunar og þjónustusvæði

 

-Endurkoma eftir athugasemdir Skipulagsstofnunnar
SLS gerðu athugasemd við að innan skipulagsins væru þegar uppbyggðar landbúnaðarlóðir en skv. aðalskipulagi væru þær á svæði sem skilgreint væri sem íbúðasvæði.
Skipulagshöfundur hefur gert lagfæringar á afmörkun deiliskipulagsins þannig að landbúnaðarlóðirnar séu undanskildar frá deiliskipulaginu.
Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að ganga frá málinu í samræmi við 1. málsgrein 42. grein skipulagslaga nr. 123/2010.

 

   

6.

2310036 - DSK íbúðar- og frístundalóðir ofan vegar Riftún L171796

 

-Endurkoma eftir athugasemdir SLS
Skipulagsstofnun gerðu ekki athugasemdir við að skipulagið yrði birt í B-deild en lögðu fram ábendingu um framsetningu vatnsverndarsvæðis á uppdrætti. Skipulagshöfundur hefur lagfært uppdrátt í samræmi við athugasemdir stofnunarinnar.
Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að ganga frá málinu í samræmi við 1. málsgrein 42. grein skipulagslaga nr. 123/2010.

 

   

7.

2401047 - Þorkelsgerði 2C, nýtt DSK

 

- Endurkoma eftir athugasemdaferli
Vegagerð gerði athugasemd við vegtengingu skipulagsins og hefur landeigandi verið í samtali við Vegagerð og aðliggjandi landeigendur um hvernig henni skuli háttað. Nú er lögð fram niðurstaða sem allir Vegagerð og aðliggjandi landeigendur hafa samþykkt.
Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að ganga frá málinu í samræmi við 1. málsgrein 42. grein skipulagslaga nr. 123/2010.

 

   

8.

2503010 - Auðsholt DSK

 

Lagt er fram nýtt deiliskipulag fyrir jörðina Auðsholt. Með deiliskipulaginu er stofnuð 10 ha lóð um nýtt lögbýli fyrir eiganda jarðarinnar.
Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Á yfirlitsmynd eru landamerki ekki í samræmi við nýútgefin lóðarblöð sem bíða afgreiðslu. Samræma þarf deiliskipulag og lóðarblöð.
Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að auglýsa tillöguna í samræmi við 1. málsgrein 41. greinar skipulagslaga nr. 123/2010.

 

   

9.

2410035 - Akurgerði - nýtt deiliskipulag

 

-Endurkoma eftir athugasemdaferli
Minjastofnun gerðu athugasemd um að skoða þyrfti svæðið m.t.t. fornminja. Landeigandi lét gera skýrslu þar sem fram kom að engar fornminjar væru á landinu. HSL gerðu athugasemd við fjölda rotþróa og framsetningu á vatnsverndarsvæði. Rotþróum var fækkað eins og kostur var og vatnsverndarsvæði skilgreint betur. Bætt var við texta í greinargerð um að ef hætta skapaðist á mengun vatns þyrfti að gera ráðstafanir s.s. um geislun vatns eða hreinlega tengingu við aðra vatnsveitu.
Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að ganga frá málinu í samræmi við 1. málsgrein 42. grein skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulagið er samþykkt með fyrirvara um að sett sé inn á uppdrátt að kvöð sé um aðgengi að neysluvatni frá borholu skipulagsins.

 

   

10.

2501038 - Bolaölduvirkjun ASKbr

 

Lögð er fram skipulagslýsing fyrir virkjun við Fjallið Eina sem hefur fengið vinnuheitið Bolaölduvirkjun. Fyrstu rannsóknir benda til þess að þarna sé að finna nægjanlegan jarðhita. Stefnt er að virkjun með framleiðslugetu allt að 100 MW af rafmagni og 200 MW af varma. Virkjuninni er ætlað að sjá iðnaðarsvæðum við Þorlákshöfn fyrir rafmagni.
Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að auglýsa skipulagslýsinguna og ganga frá málinu í samræmi við 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Nefndin bendir á að virkjunin er hvergi nærri Bolaöldu og því væri rétt að endurnefna hana við staðföng í nágrenni.

 

   

11.

2503021 - Samþykkt um leyfi fyrir sölu- og matarvagna í Þorlákshöfn

 

Lögð er fram tillaga að samþykktum varðandi leyfisveitingar til veitinga- og söluvagna í sveitarfélaginu. Eftir því sem fólksfjöldi eykst mun aðsókn í að staðsetja matar eða söluvagna aukast. Því var talið mikilvægt að setja fastmótaðar reglur um slíkar leyfisveitingar til að tryggja fyrirsjáanleika og að slíkir vagnar spili saman með öðrum fyrirtækjum í bæjarfélaginu.
Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Samþykkt staðfest og vísað til bæjarstjórnar.

 

   

Fundargerðir til staðfestingar

12.

2502008F - Skipulags- og umhverfisnefnd - 89

 

Fundargerð 89.fundar skipulags- og umhverfisnefndar frá 05.03.2025 til staðfestingar.

 

   

13.

2503002F - Bæjarráð Ölfuss - 439

 

Fundargerð 439.fundar bæjarráðs frá 06.03.2025 til staðfestingar.

 

   

14.

2503003F - Fjölskyldu- og fræðslunefnd - 30

 

Fundargerð 30.fundar fjölskyldu- og fræðslunefndar frá 12.03.2025 til staðfestingar.

 

   

15.

2503005F - Framkvæmda- og hafnarnefnd - 64

 

Fundargerð 64.fundar framkvæmda- og hafnarnefndar frá 19.03.2025 til staðfestingar.

 

   

16.

2503006F - Bæjarráð Ölfuss - 440

 

Fundargerð 440.fundar bæjarráðs frá 24.03.2025 til staðfestingar.

 

   

17.

2503004F - Skipulags- og umhverfisnefnd - 90

 

Fundargerð 90.fundar skipulags- og umhverfisnefndar frá 19.03.2025 til staðfestingar.

 

   

18.

2503001F - Afgreiðslunefnd byggingarfulltrúa - 74

 

Fundargerð 74.fundar afgreiðslunefndar byggingarfulltrúa frá 20.03.2025 til kynningar.

 

   

Fundargerðir til kynningar

19.

2009052 - Fundargerðir Heilbrigðisnefndar Suðurlands

 

Fundargerð 242.fundar Heilbrigðisnefndar Suðurlands frá 11.02.2025 og 243.fundar frá 18.03.2025 til kynningar.

 

   

20.

1805041 - Menningarmál Fundargerðir stjórnar Byggðasafns Árnesinga

 

Fundargerð 15.fundar stjórnar Byggðasafns Árnesinga frá 20.02.2025 OG 16.fundar frá 25.03.2025 til kynningar.

 

   

21.

1603005 - Samstarf sveitarfélaga Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga

 

Fundargerð 964.fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 07.02.2028. 965.fundar frá 18.febrúar, 966.fundar frá 19.febrúar, 967.fundar frá 20.febrúar, 968.fundar frá 21.febrúar, 969.fundar frá 24.febrúar, 970.fundar frá 25.02.2025 og 971.fundar frá 28.02.2025 til kynningar.

 

   

22.

1601020 - Hreinlætismál Fundargerðir stjórnar Sorpstöðvar Suðurlands.

 

Fundargerð 331.fundar stjórnar Sorpstöðvar Suðurlands frá 25.02.2025 og 332.fundar frá 18.03.2025 til kynningar.

 

   

23.

1701032 - Fræðslumál Fundagerðir stjórnar Tónlistarskóla Árnesinga.

 

Fundargerð 210.fundar stjórnar Tónlistarskóla Árnesinga frá 22.03.2024, 211.fundar frá 24.09.2024 og 212.fundar frá 11.03.2025 til kynningar.

 

   

24.

2009027 - Fundargerðir stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga.

 

Fundargerð 81.fundar stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga frá 19.02.2025 til kynningar.

 

   

25.

1701026 - Brunamál Fundargerðir stjórnar Brunavarna Árnessýslu

 

Fundargerð 26.fundar stjórnar Brunavarna Árnessýslu frá 14.03.2025 til kynningar.

 

   

 

25.03.2025

Elliði Vignisson, bæjarstjóri.

 

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?