Framkvæmdir á Þorlákshafnarvegi í dag

Sunnudaginn 10. október og mánudaginn 11. október er stefnt á að malbika Þorlákshafnarveg á milli Þrengslavegar og Eyrarbakkavegar. Veginum verður lokað á milli Þrengslavegar og Eyrarbakkavegar. Viðeigandi merkingar og hjáleiðir verða settar upp skv. viðhengdu lokunarplani.

Áætlað er að framkvæmdirnar standi frá kl. 15:00 á sunnudaginn til miðnættis á mánudagskvöld.

Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin. Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.

Lokunarplan

 

 

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?