Viðurkenning fyrir fallegasta garðinn í Ölfusi 2017
Fyrirhugað er að veita viðurkenningu fyrir fegurstu garðana í sveitarfélaginu.
Sveitarfélagið Ölfus óskar eftir tilnefningum frá íbúum sveitarfélagsins varðandi fallegasta garðinn, annars vegar í þéttbýlinu og hins vegar í dreifbýlinu.
Lífrænir hundapokar nú til sölu á bæjarskrifstofunum
Lífrænir hundapokar eru nú til sölu á bæjarskrifstofunum. Þessa poka má setja í lífræna hólfið í gráu/almennu tunnunni.
Verð: 500 kr fyrir 50 poka.
Göngum vel um sveitarfélagið okkar og hirðum upp eftir hundana.
SANDAR SUÐURSINS – töfrandi tilraunaverkefni
Spennandi vistræktarverkefni er að fara í gang í spildu er tilheyrir útivistarsvæði Þorláksskóga. Svæðið var formlega afhent Töfrastöðum í júníbyrjun sem var fyrsta fyrirtækið sem tók að sér að glæða hraun og sanda lífi.
Endurvinnslutunnur fyrir plast verða keyrðar út í dag og næstu daga
Starfsmenn þjónustumiðstöðvarinnar byrja að keyra úr endurvinnslutunnur fyrir plast í dag, þriðjudaginn 6. júní.
Inni í tunnunni er lítil tunna sem er fyrir lífrænan úrgang. Sú tunna á að fara ofan í tunnuna fyrir almennt sorp. Einnig er græn fata og pokarúllur sem fara inn í hús til að safna saman lífræna úrganginum.
Hægt er að hafa samband við þjónustumiðstöðina ef það eru einhverjar spurningar s. 483 3803.
Tilkynning frá Rarik: Rafmagnslaust verður á Mána-, Sunnubraut og hluta af Egils- og Skálholtsbraut í Þorlákshöfn 06.06.2017 frá kl 13:00 til kl 16:00
Rafmagnslaust verður á Mána-, Sunnubraut og hluta af Egils- og Skálholtsbraut í Þorlákshöfn 06.06.2017 frá kl 13:00 til kl 16:00, vegna viðhaldsvinnu.
Nánari upplýsingar veitir Svæðisvakt RARIK Suðurlandi í síma 528 9890.
Tilkynning frá Rarik: Rafmagnslaust verður í hluta af Lyng- og Setbergi Þorlákshöfn 02.06.2017 frá kl 10:00 til kl 12:00
Rafmagnslaust verður í hluta af Lyng- og Setbergi Þorlákshöfn 02.06.2017 frá kl 10:00 til kl 12:00, vegna viðhaldsvinnu.
Nánari upplýsingar veitir Svæðisvakt RARIK Suðurlandi í síma 528 9890.