Sveitarfélagið Ölfus býður öllum íbúum 60 ára og eldri og öryrkjum uppá líkamsþjálfun í samstarfi við Færni sjúkraþjálfun. Markmiðið er að byggja upp og bæta líkamlega og andlega heilsu.
Hauststarfið hefst 3. sept og er fjórum sinnum í viku.
Virk þátttaka í félagsstarfi lífgar upp á daginn og getur stuðlað að betri andlegri, líkamlegri og félagslegri heilsu.
Aðstaða fyrir félagsstarf aldraðra er að Egilsbraut 9, þar er boðið upp á ýmis konar afþreyingu fyrir eldri borgara.
Einnig eru þjónustuaðilar að bjóða uppá fjölbreytta hreyfingu gegn gjaldi. Sjá nánari upplýsingar um þjónustu fyrir aldraða á heimasíðu Ölfuss og almennt íþrótta og frístundastarf
