Lista og menningarsjóður Ölfuss - opið fyrir umsóknir

Sveitarfélagið Ölfus auglýsir eftir umsóknum um styrki úr lista- og menningarsjóði Ölfuss.

Markmið sjóðsins er:

- Að efla hvers konar menningarstarfsemi og list í sveitarfélaginu.
- Að veita styrki til sérstakra verkefna á sviði lista- og menningarmála er tengjast sveitarfélaginu á einn eða annan hátt.

Upplýsingar um reglur sjóðsins má finna hér.

Mikilvægt er að rökstuðningur og greinargóð lýsing á verkefninu sem sótt er um styrki fyrir fylgi umsókn.

Umsóknarfrestur er til og með 18. nóvember 2024 og skulu umsóknir berast til sviðsstjóra fjölskyldu og fræðslusviðs í tölvupósti jmh@olfus.is

Nánari upplýsingar veitir Jóhanna M. Hjartardóttir sviðsstjóri í síma 480 3800 eða tölvupósti jmh@olfus.is

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?