Sumarnámskeið fyrir börn – ert þú með hugmynd ?

Gleðilegt sumar 

Íþrótta- og tómstundasvið skipuleggur sumarstarf barna og unglinga í Ölfusi í samráði við deildir Umf. Þórs, Knattsp.félagið Ægi, Golfklúbb Ölfuss og Hestamannafélagið Háfeta. Námskeiðin eru öll auglýst á heimasíðu Ölfuss í lok maí.

Viltu bjóða uppá námskeið í sumar ?

Áhugasamir aðilar sem hafa áhuga að bjóða upp á námskeið fyrir börn og unglinga í sumar eru hvattir til þess að hafa samband við Ragnar Sigurðsson íþrótta og tómstundafulltrúa, ragnar@olfus.is

Foreldrar og forráðafólk er bent á að fylgjast með viðburðadagatali Ölfuss á heimasíðu sveitarfélagsins www.olfus.is. Þar verða upplýsingar um öll sumarnámskeiðin. Einnig má finna þær á upplýsingaveitum námskeiðshaldara.

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?