Sýningin ,,Fáðu þér sæti!" opnar í bókasafninu

Í lok sumars birtist lítil færsla á Facebook þar sem óskað var eftir myndum af stólum á Óseyrartanga, skemmst er frá því að segja að færslan fór á flug og viðtökurnar voru framar öllum vonum, fjöldi mynda barst og því vel orðið sýningarhæft í Galleríi undir stiganum.
Ljósmyndasýningin „Fáðu þér sæti!“ opnar fimmtudaginn 7. nóvember í galleríinu í Bæjarbókasafni Ölfuss kl. 17:00. Sýningin er samstarfsverkefni bókasafnsins og Ágústu Ragnarsdóttur, myndlistarkennara í FSu, og er opin á opnunartíma safnsins út nóvember.
Við hlökkum til að bjóða ykkur sæti, sjáumst á safninu!

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?