Íþrótta og æskulýðsnefnd Sveitarfélagsins Ölfuss auglýsir
styrki úr Afreks og styrktarsjóði
Sveitarfélagsins Ölfuss.
Afreks og styrktarsjóður Sveitarfélagsins Ölfuss
Íþrótta og æskulýðsnefnd Sveitarfélagsins Ölfuss auglýsir styrki úr Afreks og styrktarsjóði Sveitarfélagsins Ölfuss.
Markmið sjóðsins er m.a. að veita afreksíþróttafólki í hóp/einstaklingsíþróttum í íþróttafélögum innan Sveitarfélagsins Ölfuss fjárhagslegan styrk til þátttöku í íþróttakeppnum jafnt innanlands sem utan. Einnig að veita afreksmönnum á sviði íþrótta viðurkenningu og stuðning til þjálfunar og þátttöku í mikilvægum keppnum.
Úthlutun styrkja fer fram í apríl nk.
Umsóknir um styrki úr sjóðnum ásamt greinargerðum þurfa að berast til skrifstofu Sveitarfélagsins Ölfuss, Ráðhúsinu Hafnarbergi 1 í Þorlákshöfn, fyrir 1. apríl næstkomandi, merkt:
AFREKS OG STYRKTARSJÓÐUR SVEITARFÉLAGSINS ÖLFUSS UMSÓKN.
Nánari upplýsingar veitir Ragnar Sigurðsson Íþrótta og æskulýðsfulltrúi,
í sima 480 3891 eða í netfanginu ragnar@olfus.is
Íþrótta og æskulýðsnefnd Sveitarfélagsins Ölfuss