Markmið sjóðsins er m.a. að veita afreksíþróttafólki í hóp/einstaklingsíþróttum í Sveitarfélaginu Ölfusi fjárhagslegan styrk vegna æfinga og/eða keppni, og þannig skapa sem best tækifæri til að stunda íþrótt sína í heimabyggð eða annarstaðar eftir atvikum. Einnig eru veittir styrkir vegna menntunar þjálfara/leiðbeinenda.
Úthlutun styrkja fer fram í apríl nk.
Sótt er um rafrænt á heimasíðu Ölfuss, umsóknareyðublað
Umsóknir um styrki úr sjóðnum þurfa að berast rafrænt til Sveitarfélagsins Ölfuss, Ráðhúsinu Hafnarbergi 1 í Þorlákshöfn, fyrir 1. apríl næstkomandi:
AFREKS – OG STYRKTARSJÓÐUR SVEITARFÉLAGSINS ÖLFUSS – UMSÓKN.
Nánari upplýsingar veitir Ragnar Sigurðsson Íþrótta – og æskulýðsfulltrúi, í sima 480 – 3891 eða á netfanginu ragnar@olfus.is
Sveitarfélagið Ölfus
Íþrótta – og æskulýðsnefnd