Álagningu fasteignagjalda í Sveitarfélaginu Ölfusi fyrir árið 2016 er nú lokið.
Álagningu fasteignagjalda í Sveitarfélaginu Ölfusi fyrir árið 2016 er nú lokið.
Sami háttur verður við innheimtu gjaldanna og á síðasta ári þ.e. sveitarfélagið mun ekki senda út álagningarseðla fyrir fasteignagjöldum til einstaklinga yngri en 67 ára.
Álagningarseðlar eru birtir rafrænt á vefsiðunni www.island.is
undir Mínar síður og er innskráning með veflykli ríkisskattstjóra eða rafrænum skilríkjum.
Kröfur vegna fasteignagjalda birtast sem fyrr í netbanka greiðanda.
Einstaklingar fæddir 1949 og fyrr ár fá senda álagningar- og greiðsluseðla auk þess sem fyrirtæki og stofnanir fá senda álagningarseðla.
Þeir aðilar sem þess óska geta fengið heimsenda álagningar- og greiðsluseðla en verða þá að hafa samband við skrifstofu sveitarfélagsins í síma 480-3800 eða á póstfangið sigrun@olfus.is
Skrifstofa sveitarfélagsins veitir allar nánari upplýsingar um þetta fyrirkomulag svo og álagningu gjaldanna sjálfra.
Bæjarritari