Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar við kosningar til Alþingis laugardaginn 29. október 2016
Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar
við kosningar til Alþingis laugardaginn 29. október 2016
Hægt er að greiða atkvæði utankjörfundar á bæjarskrifstofum Ölfuss að Hafnarbergi 1,
Þorlákshöfn. Opnunartími kl. 09:00-12:00 og kl. 13:00-16:00 alla virka daga.
Ábyrgð á atkvæði
Athygli er vakin á því að kjósandi ber sjálfur ábyrgð á að koma atkvæði til skila og ber af því
kostnað, kjósi hann utankjörfundar hjá kjörstjóra utan sinnar kjördeildar sbr. 2. Mgr. 65. Gr. laga
um kosningar til Alþingis.
Kjósendur skulu hafa meðferðis persónuskilríki til að sanna hverjir þeir eru.
Ýmsar upplýsingar og eyðublöð vegna komandi kosninga má fá á vefsíðunni www.kosning.is