Auglýsing um framboðslista í Sveitarfélaginu Ölfusi
Framboðsfrestur vegna sveitarstjórnarkosninganna sem fram fara þann 26. maí 2018 rennur út kl. 12:00 á hádegi laugardaginn 5. maí 2018 og skulu framboðslistar hafa borist kjörstjórn fyrir þann tíma.
Kjörstjórn Sveitarfélagsins Ölfuss mun taka á móti framboðslistum í fundarsal Ráðhúss Ölfuss Hafnarbergi 1 Þorlákshöfn laugardaginn 5. maí nk. frá kl. 11:00 fyrir hádegi til kl. 12:00 á hádegi.
Þorlákshöfn 25. apríl 2018.
F.h. kjörstjórnarinnar í Sveitarfélaginu
Ölfusi
Jón H. Sigurmundsson
formaður