Eftirtaldar skipulagstillögur voru samþykktar til auglýsingar í bæjarstjórn Ölfuss þann 27. apríl, í samræmi við 1. málsgrein 41. greinar skipulagslaga nr.123/2010.
Deiliskipulagstillaga fyrir Þóroddsstaði 2 - lóð d.
Tillagan gerir ráð fyrir að lóðinni verði skipt í tvo hluta, markaður byggingarreitur fyrir íbúðarhús og bílskúr á annarri en 9 ferðaþjónustuhús á hinni. Heimilt verður að byggja allt að 1450 fermetra af byggingum á báðum lóðunum. Þetta er í samræmi við aðalskipulag Ölfuss 2020-2036.
Þóroddsstaðir 2 lóð D - deiliskipulagstillaga
Breyting á deiliskipulagi lóðanna Gljúfurárholt 13 og 14
Gerð er tillaga um breytingu á deiliskipulagi lóðanna Gljúfurárholt 13 og Gljúfurárholt 14 sem nú heita Gljúfurholt og Bjarg. Uppbyggingarheimildir eru auknar í samræmi við það sem aðalskipulag Ölfuss heimilar.
Gljúfurárholt land 13 og 14 - deiliskipulagsbreyting
Tillaga að deiliskipulagi lóðarinnar Spóavegur 12a
Tillagan gerir ráð fyrir að byggja megi íbúðarhús, gestahús og bílskúr á lóðinni í samræmi við heimildir aðalskipulags Ölfuss 2020-2036.
Spóavegur 12a - deiliskipulagstillaga
Tillögurnar verða til sýnis á bæjarskrifstofu Ölfuss, Hafnarbergi 1, Þorlákshöfn dagana 20. júlí til 24. ágúst 2023. Hægt er að senda ábendingar eða athugasemdir á netfangið skipulag@olfus.is fyrir lok vinnudags þann 24. ágúst 2023.
Eftirtaldar skipulagslýsingar voru samþykktar til auglýsingar í bæjarstjórn Ölfuss þann 29. júní, í samræmi við 1. og 2. málsgrein 40. greinar skipulagslaga nr.123/2010.
Skipulagslýsing vegna hótels og tengdrar starfsemi í Hafnarvík v. Leirur í Þorlákshöfn
Lýsingin fjallar um hótel og tengda starfsemi nærri golfvelli Þorlákshafnar. Hugmyndin er að byggja hótel á svæðinu auk minni gistihúsa í samræmi við heimildir í aðalskipulagi Ölfuss.
Skipulagslýsing vegna hótels í Hafnarvík
Skipulagslýsing vegna nýrra jarðstrengja að fiskeldi vestan Þorlákshafnar
Lýsingu fjallar um fyrirhugaða breytingu á aðalskipulagi. Hugmyndin er að breyta bæði þéttbýlis- og dreifbýlisuppdrætti þannig að þeir sýni jarðstrengi frá tengistöð norðan Suðurstrandarvegar að lóðum fiskeldisfyrirtækjanna Landeldis og Geo Salmo.
Skipulagslýsing vegna jarðstrengja vestan Þorlákshafnar
Skipulagslýsing vegna aðal- og deiliskipulags Ölfusvirkjunar við Fjallið eina
Lýsingu fjallar um fyrirhugaða jarðvarmavirkjun við Fjallið eina í Ölfusafrétti en rannsóknir benda til þess að þar sé að finna nægan jarðhita.
Skipulagslýsing vegna Ölfusvirkjunar
Lýsingarnar verða til sýnis á bæjarskrifstofu Ölfuss, Hafnarbergi 1, Þorlákshöfn dagana 20. júlí til 3. ágúst 2023. Hægt er að senda ábendingar eða athugasemdir á netfangið skipulag@olfus.is fyrir lok vinnudags þann 3. ágúst 2023.
Gunnlaugur Jónasson, skipulagsfulltrúi