Auglýsing um skipulag

Eftirtaldar skipulagstillögur voru samþykktar af bæjarstjórn Ölfuss til auglýsingar. Tillögurnar hafðu áður verið samþykktar til auglýsingar í skipulags- og umhverfisnefnd Ölfuss.

 

Meitlar og Hverahlíð II – breyting á aðalskipulagi

Lögð er fram breyting á aðalskipulagi á landsvæði innan lands Hjallatorfu ofan fjalls. Breytingin felur í sér að stofnað er iðnaðarsvæði fyrir rannsóknar- og vinnsluboranir í Hverahlíð II. Markmið rannsóknarborananna er að kortleggja jarðhitaauðlindir utan núverandi vinnslusvæða.

 

Skipulagið var samþykkt í bæjarstjórn Ölfuss þann 29. ágúst 2024. Skipulagið verður til kynningar á bæjarskrifstofu Ölfuss, Hafnarbergi 1, Þorlákshöfn til 28. nóvember 2024. Einnig er hægt að senda ábendingar eða athugasemdir á netfangið skipulag@olfus.is fyrir lok vinnudags þann 28. nóvember 2024.

 

Mölunarverksmiðja og höfn við Keflavík – breyting á aðalskipulagi

Lögð er fram tillaga að aðalskipulagsbreytingu fyrir iðnaðar og hafnarsvæði austan byggðar í Þorlákshöfn. Hámark byggingarmagns á reit I3 er aukið úr 540.000 m2 í 1.040.000 m2. Þá er nýju hafnarsvæði bætt við sem nefnist H4.

 

Skipulagið var samþykkt í bæjarstjórn Ölfuss þann 2. maí 2024. Skipulagið verður til kynningar á bæjarskrifstofu Ölfuss, Hafnarbergi 1, Þorlákshöfn til 28. nóvember 2024. Einnig er hægt að senda ábendingar eða athugasemdir á netfangið skipulag@olfus.is fyrir lok vinnudags þann 28. nóvember 2024.

 

Hraunstjörn og Hraunsland - Nýtt deiliskipulag

Lagt er fram nýtt deiliskipulag fyrir lóðirnar Hraunstjörn og Hraunsland. Á svæðinu er hraun sem rann eftir ísöld og er því friðað samkvæmt náttúruverndarlögum. Byggingarreitum hefur verið fundinn staður þar sem hraunið er gróið og hefur takmarkað verndargildi.

 

Skipulagið var samþykkt í bæjarstjórn Ölfuss þann 30. maí 2024. Skipulagið verður til kynningar á bæjarskrifstofu Ölfuss, Hafnarbergi 1, Þorlákshöfn til 28. nóvember 2024. Einnig er hægt að senda ábendingar eða athugasemdir á netfangið skipulag@olfus.is fyrir lok vinnudags þann 28. nóvember 2024.

 

 

Sigurður Steinar Ásgeirsson

Skrifstofu- og verkefnastjóri

Umhverfis- og framkvæmdasvið

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?