Blásið á blek - sýning í Galleríinu undir stiganum

Þóra Marta Kristjánsdóttir opnar sýningu í galleríinu Undir stiganum, miðvikudaginn 4. desember. Þóra er flestum Þorlákshafnarbúum kunn en hún ólst upp á Hvolsvelli en flutti hingað árið 1995 og bjó hér til ársins 2012. Þóra Marta fór á námskeið hjá Föndurlist fyrr á þessu ári og féll algjörlega fyrir listforminu sem hún lærði þar. Hún notar alkohólblek og lítinn físibelg til sköpunar.
Sýningin stendur út desembermánuð.
Bókasafnið býður upp á kaffi og smákökur við opnunina, öll velkomin!

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?