Carbfix býður til fundar í Þorlákshöfn

Carbfix býður til fundar til að kynna áform um uppbyggingu og rekstur athafnasvæðis til móttöku, niðurdælingar og bindingar CO₂ í Þorlákshöfn.
Tilgangur fundarins er að hefja samtal við íbúa Ölfus um uppbyggingu slíkra stöðva en Carbfix hefur vaxið í Ölfusi frá 2012 með starfsemi á Hellisheiði og í Þrengslum þar sem koldíoxíð (CO₂) og brennisteinsvetni er bundið frá jarðvarmavirkjun Orku náttúrunnar og CO₂ frá Climeworks.
Á fundinum verður sagt frá hvers vegna er verið að byggja slíkar stöðvar, hvernig ferlið gengur fyrir sig, hvernig slíkar stöðvar eru byggðar upp, hvernig þær geta litið út og hvaða samfélagslegu og efnahagslegu áhrif þær hafa. Þá munu Veitur lýsa hvernig þau styðja við grænt atvinnulíf í samræmi við stefnu sveitarfélaga með sömu grænu áherslur. Sveitarstjóri Ölfus, Elliði Vignisson, opnar fundinn og fjallar um samstarf Ölfus og Carbfix gegnum árin. Í lokin verður veittur nægur tími fyrir spurningar úr sal og af netinu.
Hvenær: þann 27.01.2025 frá 17:30-19:00
Hvar: Að Versölum Hafnarbergi 1, Þorlákshöfn og í streymi á Teams síðu Ölfus/Versala
Það verður kaffi og með því og skráning á fundinn fer fram hér: https://forms.office.com/e/B5eETcEhGV
Slóð á fundinn verður aðgengileg á Facebook viðburðinum á mánudeginum og verður einnig sendur í tölvupósti til þátttakenda.
Dagskrá:
🔹17:30 Elliði Vignisson, bæjarstjóri Ölfuss. Um Ölfus og Carbfix: Samstarfsaðilar í 12 ár.
🔹17:40 Sólrún Kristjánsdóttir framkvæmdastýra Veitna fer yfir stöðu forðamála og framtíðarsýn Veitna á svæðinu og hvernig Veitur starfa með grænu atvinnulífi og sveitarfélögum.
🔹17:50 Edda Sif Pind Aradóttir, framkvæmdastýra Carbfix: Um aukin umsvif Carbfix í Ölfusi, hvernig Carbfix sér verkefnið þróast og mótun þess í samvinnu við sveitarfélagið.
🔹18:30 Fundarstjóri opnar á spurningar úr sal og af netinu.
🔹19:00 Fundarslit.
Fundarstjóri: Óttar Ingólfsson.
X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?