Enn erum við að bæta í varðandi flokkun í Ölfusi

Grenndargámar hafa nú verið settir upp á plani við hliðina á Hafnarberg 12.

Í gámana má skila málmumbúðum, gler og textíl til endurvinnslu:

  • Málmar: Litlir og hreinir málmhlutir eins og niðursuðudósir, krukkulok og sprittkertakoppar.
  • Gler: Hrein ílát og flöskur úr gleri (tappar og krukkulok mega ekki fara með gleri heldur skal flokka með plasti og málmi eftir sem við á).
  • Textíll: Allur textíll eins og fatnaður, lín og efnisbútar.

Athugið að ganga vel um svæðið.

Hér að neðan má sjá myndir af grenndargámunum.

 

Staðsetning grenndargáma:

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?