Garðeigendur athugið!
Trjágróður sem vex út fyrir lóðarmörk getur skapað óþægindi og jafnvel hættu fyrir gangandi og akandi vegfarendur.
Sveitarfélagið Ölfus hvetur garðeigendur til að klippa tré sín
svo þau hvorki hindri vegfarendur, hylji umferðarskilti
né dragi úr götulýsingu.
Einnig þarf að hugsa fyrir aðgengi vegna snjóhreinsunar,
en gera þarf ráð fyrir 2,8 metra hæð undir trjágreinar á gangstígum
til að snjóruðningstæki komist undir á þeim dögum sem trjágreinar slúta undan snjóþunga.
Garðeigendur eru minntir á að byggingarreglugerð nr. 112/2012 gr. 7.2.2 setur garðeigendum
þá skyldu á herðar að halda gróðri innan lóðarmarka. Þar segir „Lóðarhafa er skylt að halda vexti trjáa eða runna á lóðinni innan lóðarmarka.
Sinni hann því ekki og þar sem vöxtur trjáa eða runna fer út fyrir lóðarmörk við götu, gangstíga eða opin svæði
er veghaldara eða umráðamanni svæðis heimilt að fjarlægja þann hluta er truflun eða óprýði veldur,
á kostnað lóðarhafa að undangenginni aðvörun.“ Sjá Byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Umhverfisstjóri Ölfuss