Íþróttamaður Ölfuss árið 2017 er Halldór Garðar Hermannsson. Samkvæmt íþrótta- og æskulýðsnefnd var valið á íþróttamanni ársins mjög erfitt þar sem margir íþróttamenn úr Ölfusi sköruðu fram úr í sinni grein á síðasta ári.
Það sem íþrótta- og æskulýðsnefnd hafði um Halldór Garðar að segja;
Halldór er fæddur 1997 og hefur átt glæsilegt körfuboltaár. Hann hefur leikið með meistaraflokki frá unga aldri en Halldór hefur verið sterkur leikmaður í yngri flokkum Þórs og í unglingalandsliðum KKÍ. Hann er orðinn lykilleikmaður í meistaraflokki Þórs og hefur sett að meðaltali 13,4 stig, 6 fráköst, 5 stoðsendingar í Íslandsmótinu í vetur. Halldór er reynslumikill leikmaður þrátt fyrir ungan aldur en hann hefur verið í öllum yngri landsliðum KKÍ og leikið á Norðurlandamótum og Evrópumótum.
Halldór var lykilleikmaður með U20 ára landsliði Íslands sem tryggði sér sæti í 8 liða úrslitum á EM A-deild í sumar með mögnuðum sigri á sterku liði Svía. Ekkert landslið hefur náð eins góðum árangri á Evrópumóti. (hafnarfrettir.is)
Það voru sjö íþróttamenn sem tilnefndir voru í kjörinu um íþróttamann Ölfuss 2017, en sjá má nöfn þeirra hérna fyrir neðan. Einnig voru viðurkenningar veittar til þeirra sem unnið hafa bikar- eða Íslandsmeistaratitil á árinu og/eða hafa keppt með landsliði Íslands í sinni grein.
Þessi voru tilnefnd til íþróttamanns Ölfuss 2017
Ingvar Jónsson – Tilnefndur af Golfklúbbi Þorlákshafnar
Þorbergur Böðvar Bjarnason – Tilnefndur af Knattspyrnufélaginu Ægi
Katrín Eva Grétarsdóttir – Tilnefnd af Hestamannafélaginu Háfeta
Halldór Garðar Hermannsson – Tilnefndur af Ungmennafélaginu Þór, körfuknattleiksdeild
Róbert Khorchai Angeluson – Tilnefndur af Ungmennafélaginu Þór, frjálsíþróttadeild
Axel Örn Sæmundsson – Tilnefndur af Ungmennafélaginu Þór, badmintondeild
Heiðar Örn Sverrisson – Tilnefnd af Ungmennafélaginu Þór, akstursíþróttadeild
Sveitarfélagið Ölfus óskar Halldóri Garðari Hermannssyni og öllum þeim sem tilnefndir voru innilega til hamingju með frábæran árangur.