Hrafnhildur Hlín nýr leikskólastjóri í Ölfusi

Hrafnhildur Hlín Hjartardóttir hefur verið ráðin leikskólastjóri við nýjan leikskóla í Vesturbyggð í Þorlákshöfn. Hrafnhildur mun leiða vinnu við undirbúning opnunar leikskólans sem nú er í byggingu og bera ábyrgð á rekstri og starfsemi leikskólans. Hrafnhildur tekur til starfa 1. febrúar næstkomandi en áætlað er að opna fjórar deildir haustið 2025.

Hrafnhildur Hlín hefur lokið prófi í leikskólakennarafræðum frá DK og mastersprófi í uppeldis- og kennslufræðum frá HÍ 2018. Hún hefur starfað í leikskólum bæði í Danmörku og hér á Íslandi m.a. sem aðstoðarleikskólastjóri. Nú síðustu ár hefur Hrafnhildur starfað sem hegðurnarráðgjafi hjá skóla og velferðarþjónustu SVÁ og Hveragerðisbæ.

Það er ánægjulegt að fá Hrafnhildi Hlín til starfa inn í flottan hóp stjórnenda sem tilheyra lærdómssamfélaginu í Ölfusi.

Leiðarljós Skólastefnu Ölfuss er að skapa nærandi lærdómssamfélag öllum hagaðilum til heilla og að hver einstaklingur fái tækifæri til vaxtar og þroska í gjöfulu umhverfi.

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?