Líkt og undanfarin ár eru íbúar í Sveitarfélaginu Ölfusi hvattir til að taka til á lóðum sínum og jörðum. Fjarlægja skal hluti sem þeim tilheyra og eru utan lóðarmarka.
Sérstök hvatning er til fyrirtækja að snyrta vel í kringum sig.
Til að auðvelda íbúum í dreifbýlinu að losa sig við sorp hefur verið gert samkomulag við bæina Sunnuhvol og Þóroddsstaðir 2a (beygt upp hjá Skálafelli) um það að íbúar í dreifbýli Ölfuss geta farið þangað og losnað við almennt sorp og timbur í gáma sem verða staðsettir þar. Einnig verða staðsettir gámar við Klettagljúfur.
Munið að flokka ruslið!
Allir eru hvattir til að taka til hendinni þessa daga og tína laust rusl í kringum sig, gaman væri ef íbúar myndu líka hreinsa út fyrir sínar jarðir og lóðir, td. utan við og meðfram girðingum, vegum og gangstéttum þar sem það á við.
Vakin er athygli á opnunartíma gámasvæðisins í Þorlákshöfn:
Alla virka daga frá kl 13:00 - 18:00.
Laugardaga er opið frá 12:00 - 16:00.
Lokað er á sunnudögum.
Munið að flokka ruslið!
Athugið að timburstaurar mega ekki fylgja girðinganeti í járnagáminn!
Ef mikið er af járni, getur sveitarfélagið séð um að láta sækja járnið.
Ekki er heimilt að losa rusl annarstaðar en á gámasvæði!
Í kjölfar hreinsunarátaksins munu starfsmenn Þjónustumiðstöðvarinnar fjarlægja lausamuni, númerslausar bifreiðar, bílflök og sambærilega hluti á almannafæri. Einnig verða hlutir sem valdið geta skaða, mengun eða lýti á umhverfinu fjarlægðir. Þetta gildir jafnt um smærri sem stærri hluti. Í þeim efnum er stuðst við reglugerðir nr. 737/2003 um meðhöndlun úrgangs og 941/2002 um hollustuhætti.
Hreint land fagurt land!
Nánari upplýsingar veitir umhverfisstjóri Sveitarfélagsins Ölfus,
david@olfus.is eða í síma 899-0011.