Húsnæðissamvinnufélagið Elliði auglýsir til sölu búseturétt í parhúsi sem staðsett er í byggðarkjarna eldri borgara í Þorlákshöfn.
Sunnubraut 6 í Þorlákshöfn
Til sölu er búseturéttur í 2ja svefnherbergja íbúð í parhúsi. Í heildina er eignin 124,3 fm. og þar af bílskúr 28,6 fm. Húsið var byggt árið 2004 og er staðsett í rólegum og notalegum byggðarkjarna eldri borgara í Þorlákshöfn.
Búseturétturinn kostar 3.000.000 kr. og mánaðargjöldin eru 150.609 kr. og hækka m.v. vísitölu neysluverðs. Innifalið í því er allt nema rafmagn, hiti og fasteignagjöld. Aldursskilyrði 60+.
Bæði félagsmenn og utanfélagsmenn geta keypt búseturéttinn en aldursskilyrði eru 60 ára og eldri. Við úthlutun verður horft til þess hve lengi einstaklingar sem sækja um hafa verið í félaginu. Ef engin félagsmaður sækir um verður búseturétturinn seldur til utanfélagsmanna.
Íbúðin er laus og verður afhent 1. ágúst nk. og skulu umsóknir berast félaginu fyrir 1. júlí.
Þeir sem hafa áhuga á að kaupa búseturéttinn skulu senda inn umsóknir á Sveitarfélagið Ölfus, Hafnarberg 1, 815 Þorlákshöfn eða á netfangið olfus@olfus.is. Nánari upplýsingar veitir Valur Rafn Halldórsson í síma 868-1895 eða valurrafnh@gmail.com.