ithrottamadurolfus_2011-15
Eva Lind Elíasdóttir frjálsíþrótta og knattspyrnukona var kjörin íþróttamðaur ársins 2011.
Íþróttamaður ársins í Sveitarfélaginu Ölfusi.
Íþrótta og æskulýðsnefnd Sveitarfélagsins Ölfuss stóð fyrir árlegri verðlaunaafhendingu til íþróttamanna sem stóðu sig vel í íþrótt sinni á árinu 2011. Einnig var tilkynnt um kjör á íþróttamanni ársins. Verðlaunaafhendingin fór fram í Versölum.
Íþróttamaður ársins 2011 var kjörinn Eva Lind Elíasdóttir frjálsíþrótta og knattspyrnukona.
Eva Lind æfði með úrvals og afrekshóp FRÍ á árinu. Í frjálsum snéri hún sér nánast alfarið að kúluvarpi í byrjun árs eftir að hafa sett íslandsmet seint á árinu á undan.
Eva Lind sigraði nánast öll kastmót sem hún keppti í og allar kúluvarpskeppnir á Íslandi sem hún keppti í fyrir 22 ára og yngri en hún er aðeins 16 ára gömul.
Hæst ber að nefna, Héraðsmeistari fullorðinna, Landsmótsmeistari og Íslandsmeistaratitil í 15-16 ára flokki.
Einnig var Eva Lind valin í U- 17 ára landslið Íslands í knattspyrnu sem tók þátt í Evrópumeistaramóti sem haldið var í Austurríki í október síðastliðnum. Þar stóð liðið sig afskaplega vel og skoraði Eva Lind m.a. eitt mark.
Þeir íþróttamenn sem voru í kjöri til íþróttamanns ársins 2011 voru.
Aðalbjörg Ýr Sigurbergsdóttir fyrir góðan árangur í fimleikum
Ingvar Jónsson fyrir góðan árangur í golfi
Þorkell Þráinsson fyrir góðan árangur í knattspyrnu
Baldur Þór Ragnarsson fyrir góðan árangur í körfuknattleik
Eva Lind Elíasdóttir fyrir góðan árangur í frjálsum íþróttum
Axel Örn Sæmundsson fyrir góðan árangur í badminton
Þorsteinn Helgi Sigurðsson fyrir góðan árangur í akstursíþróttum
Hjörtur Már Invarsson fyrir góðan árangur í sundi
Þorsteinn Guðnason fyrir góðan árangur í hestaíþróttum
Arnar Bjarki Sigurðsson fyrir góðan árangur í hestaíþróttum
Einnig heiðraði íþrótta og æskulýðsnefnd 10 ungmenni sem voru landsliðsmenn, urðu Íslandsmeistarar eða bikarmeistarar á árinu.
Þeir Þorsteinn Már Ragnarsson, Emil Karel Einarsson, Erlendur Ágúst Stefánsson og Oddur Ólafsson fengu allir viðurkenningar fyrir að hafa spilað með yngri landsliðum Íslands í körfuknattleik.
Styrmir Dan Steinunnarson og Eva Lind Elíadóttir fengu viðurkenningar fyrir Íslandsmeistaratitla í frjálsum íþróttum.
Svavar Berg Jóhannson og Eva Lind Elíasdóttir fengu viðurkenningar fyrir að hafa spilað með yngri landsliðum Íslands í Knattspyrnu.
Guðmundur Karl Guðmundsson fékk viðurkenningu fyrir að hafa spilað með landsliði Íslands í futsal.
Glódís Rún Sigurðardóttir fékk fyrir Íslandssmeistaratitla og landsmótsmeistaratitill í hestaíþróttum.
Arnar Bjarki Sigurðsson fékk viðurkenningu fyrir að hafa keppt með Íslenska landsliðinu í hestaíþróttum á heimsmeistaramóti.