„Aðstaðan í Þorlákshöfn er mjög góð en við erum að bæta hana talsvert. Í fyrra stækkuðum við knattspyrnusvæðið verulega til uppfylla væntingar og þarfir gesta. Næst er það strandblakvöllurinn,“ segir Gunnsteinn R. Ómarsson, bæjarstjóri Ölfuss.
Á föstudag undirritaði hann samning um að 21. Unglingalandsmót UMFÍ verði haldið í Þorlákshöfn verslunarmannahelgina 2018. Undir samninginn skrifuðu jafnframt Haukur Valtýsson, formaður UMFÍ, og Guðríður Aadnegard, formaður Héraðssambandsins Skarphéðinn (HSK). HSK verður mótahaldari Unglingalandsmóts UMFÍ í Þorlákshöfn 2018.
Tilkynnt var síðla árs 2015 að Unglingalandsmót UMFÍ árið 2018 verði haldið í Þorlákshöfn. Gunnsteinn segir að undirbúningur fyrir mótið hafi byrjað um leið og gengur hann vel. Félagsmenn HSK eru þaulvanir því að halda stór mót á vegum UMFÍ. Unglingalandsmót UMFÍ var haldið í Þorlákshöfn verslunarmannahelgina 2008 og Landmóts UMFÍ á Selfossi sumarið 2013. Eftir mánuð hefst svo Landsmót UMFÍ 50+ í Hveragerði sem HSK skipuleggur með bæjarbúum. Opnað verður fyrir skráningar á mótið 1. júní næstkomandi.
Gunnsteinn segir íbúa í Þorlákshöfn búa að því að mikilli reynslu hjá HSK þegar kemur að skipulagningu stórra viðburða auk þess sem aðstaðan í bænum til íþróttaiðkunar sem frábær eftir Unglingalandsmótið 2008. „Það er komin reynsla á þetta hjá okkur,“ segir Gunnsteinn bæjarstjóri í Ölfusi.