Laus er til úthlutunar íbúð fyrir aldraða að Egilsbraut 9 í Þorlákshöfn.

Íbúðin er 53,8 m2 og er með einu svefnherbergi.

Íbúðunum að Egilsbraut 9 er ætlað að vera hentugur búsetukostur þar sem einstaklingar geta haldið eigin heimili sem lengst við sem bestar aðstæður.

Forsenda þess að geta sótt um íbúð að Egilsbraut 9 er að umsækjandi uppfylli öll eftirfarandi skilyrði:

  1. Umsækjandi skal hafa náð 67 ára aldri.
  2. Umsækjandi skal hafa átt lögheimili í sveitarfélaginu í a.m.k. 12 mánuði.
  3. Umsækjandi sé í þörf fyrir aðstoð og stuðning til að geta búið á eigin heimili og að slíka þjónustu sé ekki hægt að veita í núverandi húsnæði umsækjanda.

Velferðarþjónustu Sveitarfélagsins Ölfuss er heimilt að veita undanþágu frá skilyrðunum við eftirfarandi aðstæður:

  1. Umsækjandi hefur búið í Ölfusi stóran hluta ævi sinnar en flutt tímabundið, að hámarki til tveggja ára, úr sveitarfélaginu vegna húsnæðisvanda eða vinnu.

Umsóknir um undanþágu skulu vera skriflegar þar sem gerð er grein fyrir ástæðu undanþágubeiðni.

Fullnægi umsækjandi skilyrðum raðast umsóknin í forgangsröð samkvæmt matsviðmiði þar sem m.a. er haft til hliðsjónar heilsufar, félagslegar aðstæður og húsnæðisstaða. Þjónustuþörf verður þannig faglega metin af fagteymi húsnæðismála og ræður stig þjónustuþarfar mestu þegar að úthlutun kemur.

Úthlutun íbúða fer fram hjá fagteymi húsnæðismála Ölfuss velferðarþjónustunnar og tekur mið af fyrirliggjandi gögnum.


Sótt er um rafrænt á heimasíðu Sveitarfélagsins Ölfuss.

Umsóknarfrestur er til og með. 2. apríl n.k.

Athugið að allar eldri umsóknir óskast endurnýjaðar.

Nánari upplýsingar veitir Eyrún Hafþórsdóttir deildarstjóri velferðarþjónustu eyrun@olfus.is

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?