Lögfræðiálit um heimild bæjarstjórnar til að fresta atkvæðagreiðslu

Eins og kunnugt er frestaði bæjarstjórn áður auglýstri atkvæðagreiðslu meðal íbúa um skipulagslegar forsendur mölunarverksmiðju í kjölfarið á erindi First Water þar sem goldinn var varhugur við fyrirætlan um mölunarverksmiðju og höfn í Keflavík. Eftir að tekin var ákvörðun um að fresta atkvæðagreiðslu hafa komið fram vangaveltur um hvort slíkt sé lagalega heimilt, enda málið fordæmalaust. Til að svara því vill Sveitarfélagið Ölfus gera opinbert lögfræðiálit sem unnið var til að vera undirbúin ef til þess kæmi að bæjarstjórn myndi velja þá leið að fresta atkvæðagreiðslu til að mæta innsendu áliti First Water.

Lögfræðiálitið er unnið af Guðjóni Bragasyni hjá GB stjórnsýsluráðgjöf slf.

Loka orð álitsins eru svohljóðandi:

Sveitarstjórn er sá aðili sem tekur ákvörðun um að boða til atkvæðagreiðslu og því einnig sá aðili sem er til þess bær að endurskoða ákvörðun eða fresta atkvæðagreiðslu um tilgreindan eða eftir atvikum ótilgreindan tíma. Slík ákvörðun verður einungis tekin á löglega boðuðum sveitarstjórnarfundi, sem getur verið aukafundur.“

 

Álitið í heild sinni er hægt að nálgast hér: Lögfræðiálit vegna frestunar

 

Að lokum skal ítrekað að mölunarverksmiðja mun ekki rísa nema að undangenginni atkvæðagreiðslu meðal íbúa.

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?