Nýtt póstnúmer í dreifbýli Ölfuss

Mynd_0207686
Mynd_0207686
Frá og með 1. desember nk. verður póstáritun íbúa í dreifbýli Ölfuss 816  Þorlákshöfn í stað 801 Selfoss.
Nýtt póstnúmer í dreifbýli Ölfuss

 

Samkvæmt ósk Sveitarfélagsins Ölfuss verður tekið í notkun nýtt póstnúmer fyrir dreifbýli í Ölfusi.  Frá og með 1. desember nk. verður póstáritun íbúa í dreifbýli Ölfuss 816  Þorlákshöfn í stað 801 Selfoss. 

 

Á fundi bæjarstjórnar Ölfuss 25. mars sl. var samþykkt að óska eftir því við póstnúmeranefnd að dreifbýli Ölfuss fengi nýtt póstnúmer, 812 Ölfus.  En þar sem flokkunarkerfi Íslandspósts, Póstnúmerakerfið, byggir á að dreifbýli sem er þjónað af sama pósthúsi verði tengd við staðinn með númeri leggur Íslandspóstur  til að póstáritunin verði 816  Þorlákshöfn.

  

Því verður áritun íbúa í Þorlákshöfn 815 Þorlákshöfn, en áritun íbúa í sveit 816 Þorlákshöfn. 

 

Þessi breyting mun hafa  áhrif á um 230 bæi í sveitarfélaginu.

 

Allmargir bæir sem eru næst Hveragerði hafa fengið þá þjónustu að sækja skráðar sendingar í póstafgreiðsluna  á Hveragerði.  Slíkt verður áfram í boði auk þess sem flokkun og dreifing (frá Selfossi) verður með óbreyttu sniði.

 

 

 

 

 

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?