Vinnuskóli Ölfuss verður starfræktur frá 6. júní til 9. ágúst.
Skráning í Vinnuskóla Öfuss 2012 er hafin!
Vinnuskóli Ölfuss verður starfræktur frá 6. júní til 9. ágúst.
Hægt er að nálgast reglur Vinnuskólans og skráningarblað á bæjarskrifstofu Ölfus og heimasíðu sveitarfélagsins olfus.is
Skila skal inn skráningarblaði á skrifstofu Ölfuss.
Síðasti skráningardagur er miðvikudaginn 23. maí n.k.
Við skráningu í Vinnuskólann er litið svo á að unglingur sé að sýna áhuga á að taka þátt í starfi skólans og samþykki reglur hans.
Nánari upplýsingar veitir umhverfisstjóri í síma 862-0920 eða með tölvupósti á netfangið gkg@olfus.is