Snjómokstur í Þorlákshöfn í dag

Góðan dag, kæru íbúar og vegfarendur.

Það er sannarlega vetrarlegt yfir Ölfusi í dag, með snjóinn sem leggst mjúkur yfir landslagið í allri sinni dýrð. Við viljum upplýsa ykkur um að snjómokstur hófst fyrir klukkan 5 í nótt og okkar frábæra teymi er að störfum til að tryggja öryggi íbúa og vegfarenda.

Fjögur snjómoksturstæki frá okkur eru nú á ferðinni ásamt stuðningi frá verktaka og verður unnið að mokstri allan daginn. Vinsamlegast athugið að miklir ruðningar myndast við mokstur og við leggjum okkur fram við að hreinsa frá innkeyrslum eins fljótt og hægt er. Höfuð áhersla er þó lögð á að halda götum færum og tryggja öryggi. Nú þegar eru allar stofnleiðir orðnar vel færar.

Á meðan vetrarveðrið sýnir sínar kröftugu hliðar hvetjum við alla til að sýna tillitssemi í umferðinni og fara varlega. Mundu að hægja á ferðinni, gefa öðrum vegfarendum svigrúm og njóta þess sem vetrarlandslagið býður upp á.

Öll getum við lagt okkar af mörkum til að gera vetrardaga örugga og ánægjulega fyrir alla í okkar samfélagi. Kærar þakkir fyrir þolinmæðina og samvinnuna.

Minnum íbúa á að hreinsa frá sorptunnum þar sem sorphirða er í gangi og verður næstu daga. 

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?