Snjómokstur í Þorlákshöfn: Vinna hafin strax og fyrsti snjórinn féll

Í gær upp úr klukkan 15:00 byrjaði að snjóa í Þorlákshöfn og strax var hafist handa við snjómokstur á götum og gangstéttum bæjarins. Unnið var sleitulaust fram eftir kvöldi til að tryggja örugga umferð bæði gangandi og akandi vegfarenda.

Vinna við snjómokstur hófst svo á ný í dag fyrir klukkan 5 að morgni til að tryggja greiðfærar götur og gangstéttir fyrir íbúa og gesti bæjarins. Fjögur snjómoksturstæki sveitarfélagsins hafa verið að störfum og er öll vinna unnin með öryggi og þjónustu íbúa að leiðarljósi.

Við viljum minna fólk á að sýna sérstaka tillitssemi í grennd við snjómoksturstæki og fara varlega í snjónum og hálkunni. Öryggi allra er í forgangi, og með samstilltu átaki tryggjum við greiðfært og öruggt samfélag.

Takk fyrir samstarfið og sýnda þolinmæði á meðan snjómoksturinn fer fram.

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?