Staða aðstoðarskólastjóra við Grunnskólann í Þorlákshöfn er laus til umsóknar.

Í skólanum eru 230 nemendur í 1. – 10. bekk og við hann starfar hæft og vel menntað starfsfólk. Mikill stöðugleiki hefur verið í starfsmannahaldi sem endurspeglast í einkunnarorðum skólans sem eru: Vinátta, virðing og velgengni. Starfsfólk og nemendur skólans vinna að metnaði að aukinni umhverfisvitund og minnkun matarsóunar. Húsnæði skólans er afar gott líkt og allur aðbúnaður. Gott samstarf er við leik- og tónlistarskóla á staðnum, en tónlistarskólinn er í húsnæði grunnskólans. Sveitarfélagið Ölfus hefur sinnt skólamálum af miklum myndugleik. Leitað er eftir metnaðarfullum einstaklingi sem býr yfir þekkingu, skýrri sýn á skólastarf og leggur áherslu á vellíðan og árangur allra sem í skólanum starfa, nemenda jafnt sem starfsmanna.

 Meginhlutverk aðstoðarskólastjóra er að:

  • Veita faglega forystu og móta framtíðarsýn í samræmi við skólastefnu sveitarfélagsins, aðalnámskrá grunnskóla og lög um grunnskóla.
  • Vera staðgengill skólastjóra, bera ábyrgð á og stjórna daglegri starfsemi skólans í samstarfi við skólastjóra.
  • Bera ábyrgð á félagsstarfi nemenda innan skólans og hafa umsjón með tómstundastarfi og lengdri viðveru nemenda.
  • Hafa yfirumsjón með framkvæmd sjálfsmats.
  • Veita markvissa kennslufræðilega leiðsögn og endurgjöf til starfsmanna.
  • Annast skipulagningu forfalla og skráningu þeirra.

 Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf sem grunnskólakennari og kennslureynsla í grunnskóla.
  • Framhaldsmenntun á sviði stjórnunar eða uppeldis- og menntunarfræða.
  • Farsæl stjórnunar- og kennslureynsla.
  • Góðir skipulagshæfileikar og lipurð í samskiptum.
  • Reynsla af umsjón með innra mati/sjálfsmati grunnskóla æskileg.
  • Vilji til að leita nýrra leiða í skólastarfi og áhugi á skólaþróun.

 

Umsókninni skal fylgja ferilskrá um störf umsækjanda, menntun og stjórnunarreynslu og nöfn tveggja umsagnaraðila. Einnig skal fylgja greinargerð þar sem fram koma hugmyndir umsækjanda um skólastarf og tilgreina þau verkefni sem viðkomandi hefur unnið að og varpað geta ljósi á færni hans til að sinna starfinu.

Ráðið verður í stöðuna frá og með 1. ágúst 2018 eða síðar eftir samkomulagi. Umsækjendur skili umsókn í tölvupósti á netfangið olina@olfus.is fyrir miðvikudaginn 4. júlí 2018.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi KÍ og Launanefndar íslenskra sveitarfélaga. Nánari upplýsingar um starfið veitir: Ólína Þorleifsdóttir verðandi skólastjóri, olina@olfus.is, s. 861 1732.

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?