Markaðs- og menningarnefnd Sveitarfélagsins Ölfuss auglýsir eftir umsóknum um styrki úr lista- og menningarsjóði Ölfuss.
Styrkumsóknir í lista- og menningarsjóð Ölfuss
Markaðs- og menningarnefnd Sveitarfélagsins Ölfuss auglýsir eftir umsóknum um styrki úr lista- og menningarsjóði Ölfuss.
Markmið sjóðsins er:
- Að efla hverskonar menningarstarfsemi og list í sveitarfélaginu.
- Að veita styrki til sérstakra verkefna á sviði menningarmála er tengjast sveitarfélaginu á einn eða annan hátt.
Upplýsingar um reglur sjóðsins er að finna á vef sveitarfélagsins (http://www.olfus.is/
/Reglur-um-styrkveitingar-til-menninga
)
Umsóknareyðublað má finna hér: http://www.olfus.is/
/
/Umsokn-lista--og-menningarsjodur.pdf
Umsóknarfrestur er til 5. nóvember 2016 og skulu umsóknir berast til markaðs- og menningarfulltrúa á skrifstofu sveitarfélagsins, Hafnarbergi 1, 815 Þorlákshöfn merkt Lista- og menningarsjóður Ölfuss eða í tölvupósti katrin@olfus.is
Nánari upplýsingar veitir Katrín Ósk Sigurgeirsdóttir, markaðs- og menningarfulltrúi í síma 480 3808 eða tölvupósti katrin@olfus.is.
Markaðs- og menningarnefnd Ölfuss