Eftirfarandi sumarstörf eru laus til umsóknar hjá Sveitarfélaginu Ölfusi:
Umsóknareyðublöð eru á bæjarskrifstofum eða á eftirfarandi slóð: https://www.olfus.is/is/moya/formbuilder/index/index/umsokn-um-starf
Sendið umsókn á david@olfus.is eða skilið inn umsókn á bæjarskrifstofur Ölfus.
Umsóknarfrestur er til og með 12.04.2019
Störf hjá vinnuskólanum:
Yfirflokkstjóri vinnuskólans
- Yfirumsjón með flokkstjórum og vinnuhópum vinnuskólans ásamt umhverfisstjóra.
- Almenn garðyrkjustörf o.fl. tengt vinnuskólanum (almenn garðyrkjustörf og umhirðu á opnum svæðum tengd vinnuskólanum).
- Frumkvæði og góð mannleg samskipti.
- Bílpróf skilyrði.
- Krafist er stundvísi, ástundunar, dugnaðar.
- Lágmarksaldur 22 ára.
Flokkstjórar vinnuskólans
- Umsjón með vinnuhóp í vinnuskólanum.
- Almenn garðyrkjustörf o.fl. tengt vinnuskólanum (almenn garðyrkjustörf og umhirðu á opnum svæðum tengd vinnuskólanum).
- Frumkvæði og góð mannleg samskipti.
- Krafist er stundvísi, ástundunar, dugnaðar.
- Lágmarksaldur 20 ára.
Störf hjá umhverfisdeild og þjónustumiðstöð:
Verkstjóri yfir sláttudeild
- Umsjón með starfsmönnum sláttuhóps.
- Skipulagning og ábyrgð á garðslætti og hirðingu á opnum svæðum í samráði við umhverfisstjóra.
- Viðkomandi þarf að hafa bílpróf.
- Reynsla af viðhaldi véla og vinnuvélaréttindi æskileg.
- Krafist er stundvísi, ástundunar, dugnaðar.
- Lágmarksaldur 22 ára.
Sumarstarfsfólk í sláttudeild og þjónustumiðstöð
- Vinna við við almenn garðyrkjustörf, garðslátt og hirðingu á opnum svæðum ásamt ýmsum verkefnum Þjónustumiðstöðvar.
- Krafist er stundvísi, ástundunar og dugnaðar.
- Frumkvæði og góð mannleg samskipti.
- Bílpróf og vinnuvélaréttindi kostur.
- Lágmarksaldur 17 ára.
Nánari upplýsingar veitir Davíð Halldórsson umhverfisstjóri í síma 899 0011 eða david@olfus.is