Sundlaugin - innilaugin opnar

Sundlaugin í Þorlákshöfn
Innilaugin opnar laugardaginn 15. júní kl. 10 en útisvæðið er áfram lokað fram í næstu viku. 

Viðhaldsframkvæmdir við sundlaugar og potta hafa staðið yfir undanfarna daga. M.a. viðgerð á tröppum í potta, steypuviðgerðir, málningavinna og fleira.  Vinnan hefur gengið vel en rigningin er aðeins að tefja framkvæmdir. 

Athugið að íþróttamiðstöðin er lokuð á þjóðhátíðardaginn, 17. júní.

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?