Sveitarfélagið Ölfus auglýsir eftir umsóknum um styrki úr lista- og menningarsjóði Ölfuss.
Markmið sjóðsins er:
- Að efla hvers konar menningarstarfsemi og list í sveitarfélaginu.
- Að veita styrki til sérstakra verkefna á sviði lista- og menningarmála er tengjast sveitarfélaginu á einn eða annan hátt.
Upplýsingar um reglur sjóðsins er að finna á vef sveitarfélagsins.
Mikilvægt er að rökstuðningur og greinargóð lýsing á verkefninu sem sótt er um styrki fyrir fylgi umsókn.
Umsóknarfrestur er til og með 15. nóvember 2023 og skulu umsóknir berast til sviðsstjóra fjölskyldu og fræðslusviðs í tölvupósti jmh@olfus.is
Nánari upplýsingar veitir Jóhanna M. Hjartardóttir sviðsstjóri í síma 480 3800 eða tölvupósti jmh@olfus.is