Verkið er fólgið í yfirborðsfrágangi gatna og svæða í nýju hverfi sem er í byggingu. Um er að ræða jöfnun á núverandi fyllingu, jöfnunarlag, malbik og kantstein á götu, torf, fyllingu, jöfnunarlag og malbik á gangstéttar auk annars
yfirborðsfrágangs eins og tilgreint er á teikningum.
Verklok eru 30.09.2025.
Helstu magntölur eru:
Malbikun stíga og gatna Jöfnunarlag stíga og gatna Jöfnun núverandi fyllinga Kantsteinn Þökulögn |
21.808 m² 23.140 m² 22.750 m² 3.215 m 8.600 m² |
Útboðsgögn verða afhent á útboðvef sem er aðgengilegur
hér:
https://olfus.ajoursystem.net/Tender/DirectLink/ffc70a7f-807a-4d65-a0eb-c132f446d586
Tilboðum skal skila rafrænt í útboðskerfinu Ajour.
Tilboð skulu sett fram með þeim hætti sem sett er fram í útboðskerfinu og í samræmi við skilmála útboðs og hlaða
upp þeim skrám sem gerð er krafa um. Bjóðandi fær staðfestingarpóst þegar hann hefur skilað tilboði. Ef enginn
póstur berst, hefur afhending ekki tekist. Bjóðendur skulu í þeim tilfellum leita til Ajour þjónustuaðila án tafar.
Bjóðandi ber ábyrgð á að tilboð berist á réttum tíma og er hvattur til að hefja tímanlega vinnu við að skila því inn.
Skilafrestur tilboðs er til kl. 11:00 föstudaginn 4. apríl 2025.
Opnun tilboða verður framkvæmd með rafrænum hætti á útboðsvefnum eftir að skilafrestur tilboða er liðinn.
Bjóðendum verður því ekki boðið að mæta á opnunarfund en í kjölfar opnunar tilboða verður bjóðendum sent
opnunaryfirlit rafrænt.
Byggingarfulltrúinn í Þorlákshöfn